Björn Ingi þungt hugsi: Tilslakanir dregnar til baka eftir fréttir gærdagsins?

Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans og höfundur bókarinnar Vörn gegn veiru, segir að staðan í leikskólum og skólum víða beini athyglinni að því hvers vegna framlínufólk þar, kennarar og annað starfsfólk, er ekki framar í forgangsröðinni þegar kemur að bólusetningum.

Þrettán kórónuveirusmit greindust á laugardag og þar af voru átta utan sóttkvíar. Þetta er mikill fjöldi sé litið til þess að nýlega var farið í ýmsar tilslakanir vegna góðrar stöðu í faraldrinum. Minnst tíu starfsmenn á leikskólanum Jörfa eru smitaðir, en hópsmitið má rekja til einstaklings sem virti ekki reglur um sóttkví.

Björn Ingi bendir á það á Facebook-síðu sinni að sérfræðingar hafi verið svolítið undrandi, en þó fegnir, yfir fáum smitum að undanförnu.

„Því það sem greinist er oft ótengt innbyrðis, utan sóttkvíar og vítt og breitt, sem bendir til þess að einhvers staðar malli veiran í samfélaginu. Vonandi er þessi lukka ekki á enda nú og vonandi verður hægt að flokka smitin sem komu upp á leikskólanum Jörfa á næstu dögum sem stóra hópsýkingu en ekki samfélagssmit. Takist það ekki og fleiri og fleiri smit greinast á næstu dögum, er viðbúið að Þórólfur skili nýju minnisblaði þar sem nýjustu tilslakanir verða dregnar til baka að hluta eða öllu leyti. Því miður,“ segir hann.

Ýmsir leggja orð í belg undir færslu Björns Inga og segist til dæmis Birgir Örn Guðjónsson, Biggi lögga, taka heilshugar undir það að kennarar og annað starfsfólk skóla og leikskóla hefði átt að vera framar í forgangsröðinni þegar kemur að bólusetningu. Hann kveðst þó vona að Þórólfur hlaupi ekki til og dragi tilslakanirnar til baka. Því oft hafi það komið fram að einungis þurfi einn svartan sauð til.

„Að eltast við þennan eina er gjörsamlega vonlaus barátta. Þess vegna snýst þetta nú nær algjörlega um gang bólusetningar. Nú er búið að bólusetja stærsta part viðkvæmra hópa og framlínufólks og þúsundir eru bólusettir í hverri viku. Það er farið að verða erfiðara og erfiðara að réttlæta miklar skerðingar á frelsi fólks og sömuleiðis erfiðara að framfylgja því þegar samstaðan minnkar. En við erum að standa okkur drullu vel með ótrúlega fáum undantekningum. Nú er bara að sigla þessu í land.“