Nú þegar tæplega 1,3 milljónir manna hafa látist í kórónuveirufaraldrinum er farið að hylla undir komu bóluefnis gegn þessari skaðræðisveiru.
Lyfjafyrirtækið Pfizer/BioNTech fullyrðir að bóluefni sem fyrirtækið hefur þróað virkar í 90 prósentum tilfella. Fjölmiðlar víða um heim greina frá þessu.
Sjá einnig: Segja bóluefni sitt virka í 90% tilfella
Engar alvarlegar aukaverkanir hafa fylgt prófunum á lyfinu og segir Dr. Albert Bourla, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, að dagurinn í dag sé frábær fyrir mannkynið og vísindin.
„Fyrstu prófanir á þriðja stigi tilrauna gefa til kynna að bóluefnið okkar virki gegn COVID-19,“ segir Dr. Albert Bourla, framkvæmdastjóri lyfjarisans.
Óhætt er að segja að fréttin hafi vakið athygli víða. Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans, höfundur bókar um veiruna og sá fjölmiðlamaður sem hefur verið hvað mest áberandi hér á landi í umfjöllun um veiruna, er skorinorður á Facebook-síðu sinni. Hann deilir frétt Viljans og segir: „Þetta eru bestu fréttir í háa herrans tíð.“
Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður landlæknis, fagnar þessum tíðindum. „Það tekur venjulega 10-15 ára að þróa bóluefni. Ef þetta er rétt þá verður þróun bóluefnis við #covid19 eitt mesta afrek vísindasögunnar,“ segir hann á Twitter.