Fjölmiðlamaðurinn Björn Ingi Hrafnsson hefur eignast betra og fallegra líf eftir að hann hætti að neyta áfengis. Hann fagnaði því í gær að þá voru liðnir 1.035 dagar, eða 34 mánuðir, síðan hann sagði skilið við áfengið.
„Veröldin er nógu flókin fyrir og blessun að vera laus við áfengið. Að sofna allsgáður og vakna hress er dýrmætt. 1.035 dagar eða 34 mánuðir komnir. Einn dag í einu,“ segir Björn Ingi sem má svo sannarlega vera stoltur af sínum árangri.
„Mæli með þessu fyrir alla sem vilja koma lífinu og heilsunni í lag. Það er sigur fólginn í því að viðurkenna vanmáttinn og leita sér hjálpar og stuðnings hjá öðrum í sömu stöðu. Frídagarnir framundan þurfa ekki að fara í sull og vitleysu. Lífið er miklu dýrmætara en það.“