Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans og sá fjölmiðlamaður sem fjallað hefur hvað mest um kórónuveirufaraldurinn hér á landi, er ekki ýkja bjartsýnn á stöðuna í smitum hér á landi.
Faraldurinn er á fullri ferð um þessar mundir og í gær greindist metfjöldi smita, eða 168 einstaklingar. Á fimmtudaginn í síðustu viku greindust 167 smit. Þessar tölur vekja ekki beint bjartsýni um líf án samkomutakmarkana og grímuskyldu. Nýjar reglur taka gildi á morgun en þá fara samkomutakmarkanir úr 2.000 einstaklingum niður í 500.
Björn Ingi segir í pistli á Facebook-síðu sinni að það blasi við að ríkisstjórnin hafi farið í vægari aðgerðir fyrir helgi en Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefði viljað.
„Sumt af þeim tekur ekki gildi fyrr en á morgun. Þá gæti Þórólfur verið kominn með nýtt minnisblað um enn hertari aðgerðir. Verður hljómgrunnur fyrir því hjá fráfarandi eða nýrri ríkisstjórn? Þetta er furðuleg staða og ekki góð.“
Björn Ingi segir að sem betur fer veikist fæstir alvarlega af þeim sem smitast þessa dagana.
„En það munar um hvern og einn sjúkling. Vonum það besta, góðir landsmenn og pössum okkur svo að ekki þurfi að skella hér öllu í lás, eða því sem næst.“