Björn Ingi svartsýnn: „Þá verður vitaskuld öllu skellt í lás“

Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans og höfundur bókarinnar Vörn gegn veiru, er ekki beint bjartsýnn á framhaldið hvað varðar COVID-19. Eins og komið hefur fram greindust tvö smit utan sóttkvíar um helgina og tvö smit til viðbótar bættust við í gær.

Hafa Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn varað við því að ný bylgja geti mögulega farið af stað. Það mun þó væntanlega koma í ljós á allra næstu dögum.

Fáir fjölmiðlamenn þekkja COVID-19-faraldurinn betur hér á landi en Björn Ingi Hrafnsson enda skrifaði hann bók um faraldurinn sem kom út síðastliðið haust og þá hefur hann setið nánast hvern einasta upplýsingafund almannavarna síðan faraldurinn fór af stað.

„Því miður eru líkur á að fleiri samfélagssmit greinist næstu daga sem gera að engu vonir um frekari tilslakanir í bili. Hins vegar er undir okkur sjálfum komið hvort fjórða bylgjan hefst hér í aðdraganda páska, en þá verður vitaskuld öllu skellt í lás með tilheyrandi vonbrigðum og tekjufalli fyrir marga. Góðu fréttirnar eru hins vegar að framkvæmd bólusetningar gengur vel með því litla af bóluefni sem fengist hefur til landsins.“

Björn Ingi nefnir að hann hafi fengið þann heiður að vera fylgdarmaður 85 ára höfðingja úr fjölskyldunni í dag í bólusetningu í Laugardalshöll.

„Það var unun að fylgjast með samstarfi Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og lögreglunnar á vettvangi; allt gekk eins og smurð vél og þakklátir eldri borgarar streymdu inn og út úr Höllinni glaðir í sinni. Mikið vona ég að okkur lánist að útvega hraðar bóluefni svo þetta dásamlega starfsfólk nái að verja sem flesta fyrir veirunni og opna þannig samfélagið. Við þurfum öll á því að halda, fremur en nýrri bylgju og mögulega eldgosi ofan í allt saman.“