Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans, spyr hvers vegna íslensk stjórnvöld með Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra fremsta í flokki, treysta á bólusetningaráætun Evrópusambandsins. Hann segist vita til þess að framámenn í íslensku atvinnulífi, með mikil tengsl við alþjóðleg lyfjafyrirtæki, hafi boðið fram aðstoð sína við að afla bóluefnis. Þetta kemur fram í pistli Björns Inga á vef Viljans.
Svandís hafi hins vegar afþakkað alla slíka aðstoð segir hann. „Jafnvel þegar flestir kollegar hennar innan aðildarlandanna eru löngu lagðir á flótta og búnir að lýsa áætluninni sem allsherjar klúðri og hneyksli. Og við erum ekki einu sinni í Evrópusambandinu!“ skrifar Björn Ingi.
Hann spyr hvers vegna ekki sé rætt um málið á Alþingi, að verið sé að treysta áætlun ESB sem hafi brugðist.
„Einhver kann þá að segja, að við eigum ekki að reyna að „troða okkur fram fyrir röðina“. En hvaða röð er það? Það er engin röð. Það eru öll lönd á útopnu að reyna að bólusetja sitt fólk. Bretar eru að nálgast að hafa bólusett 40% þjóðarinnar, Bandaríkjamenn bólusetja í tugmilljónavís og Serbar, sem eru umsóknarríki að ESB, hafa samið við Kínverja og Rússa um bóluefni, auk Evrópusambandsins. Þjóðverjar eru að ganga frá samningum við Rússa. Fleiri þjóðir mætti nefna,“ skrifar Björn Ingi.
Hann hafi ekki orðið var við að aðrar þjóðir heims hafi gagnrýnt Ísraelsmenn eða aðra sem hafa verið öflugri en aðrir við að útvega bóluefni. Nauðsynlegt sé að horfast í augu við raunveruleikann, áætlanir stjórnvalda um að bólusetja stóran hluta þjóðarinnar á fyrri hluta ársins muni ekki ganga eftir þar sem bóluefnið sé einfaldlega ekki til.
„Það má ekki frekari tíma missa. Þangað til væri líka best að segja okkur bara satt um stöðuna,“ skrifar Björn Ingi að lokum.