Björn Ingi: Stór saga virðist enn ó­sögð – Býst við meiri hörku hér á landi eftir ára­mót

„Hér skal því spáð, að mikil harka færist í um­ræður hér heima strax eftir ára­mót um okkar eigin stefnu­mörkun í þessum efnum,“ segir Björn Ingi Hrafns­son, rit­stjóri Viljans og höfundur bókarinnar Vörn gegn veiru, í pistli á Face­book-síðu sinni í gær­kvöldi.

Björn skrifar þar um bólu­setningar gegn CO­VID-19, eða öllu heldur þá gagn­rýni sem komin er upp víða, vegna kaupa þjóða heimsins á bólu­efni gegn veirunni al­ræmdu.

Björn Ingi bendir á að víða sé þungt yfir enda far­aldurinn ekki í rénun í löndunum í kringum okkar. Bretar hafa hert tökin og raunar allt að því af­lýst jólunum. Þá er óttast að nýtt af­brigði veirunnar sem dreifst hefur þar smiti hraðar og hafa ýmis lönd, Þýska­land, Frakk­land, Ítalía, Holland og Belgía þar á meðal, sett bann á komur fólks frá Bret­landi af þessum sökum. Björn Ingi bendir á að Ís­land sé þó ekki þessum hópi.

„Já­kvæðar fregnir af bólu­setningum færa bjart­sýni, en víða í löndum Evrópu­sam­bandsins er komin upp hörð gagn­rýni á þá að­ferða­fræði sem beitt hefur verið við sam­eigin­leg inn­kaup, en Ís­land fylgir ESB-þjóðunum þar að málum,“ segir Björn Ingi sem vísar í um­fjöllun þýska blaðsins Spi­egel þar sem fram kom að Banda­ríkja­mönnum, Bretum og Kanada­mönnum hefði verið fært mikið for­skot í bólu­setningum vegna svifa­seinna að­gerða í Brussel. Þar hafi dramb­semi ráðið för í á­kvarðana­töku og pólitískir og við­skipta­legir hags­munir frekar en sú við­leitni að leysa vandann hratt og vel.

„Þannig mátti ekki kaupa of mikið frá Pfizer þar sem franskir og sænskir fram­leið­endur vildu einnig koma sinni vöru á fram­færi, en reyndust svo miklu seinni á ferð með sína lausn en Banda­ríkja­mennirnir.“

Hann bendir á að Þjóð­verjar séu með böggum hildar, enda vísinda­mennirnir sem bera mesta á­byrgð á þróun bólu­efnis Pfizer bú­settir í Þýska­landi.

„Merkel reynir nú allt hvað hún getur að rétta hlut Þjóð­verja í bólu­setningar­röðinni, því flestum er orðið ljóst að þær þjóðir sem standa vel að málum í því efni munu upp­skera efna­hags­bata fyrr en aðrar sem þar draga lappirnar. Og víða eru sér­fræðingar í Evrópu farnir að viður­kenna, að kannski verði það jafn­vel Banda­ríkja­menn með sína um­deildu ríkis­stjórn og for­seta á út­leið, sem hafi tekið af­gerandi for­ystu þegar kemur að bólu­setningum. Það væri þá aldrei.“

Björn Ingi spáir því að mikil harka færist í um­ræðurnar hér heima strax eftir ára­mót um okkar eigin stefnu­mörkun í þessum efnum. Hann hefur vafa­lítið nokkuð til síns máls en eins og fram hefur komið vinnur Björn Ingi nú að annarri bók um kórónu­veiruna sem hann stefnir á að gefa út síðla vetrar.

„Þar virðist stór saga enn ó­sögð, en vonandi tekst okkur þó að rétta okkar hlut fljót­lega. Það er for­senda fyrir því að árið 2021 verði ekki jafn þungt í skauti og það sem senn hverfur á braut. Við megum eigin­lega ekki við mörgum fleiri ó­tíðindum á næstunni. Svo ein­falt er það.“

Það er víða þungt yfir, enda herjar farsóttin á öll ból og byggðir af miklum móð. Bretar herða enn tökin og voru þau...

Posted by Björn Ingi Hrafnsson on Sunnudagur, 20. desember 2020