Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans, segir eftir mörgum spurningum ósvarað eftir tvenna upplýsingafundi almannavarna í vikunni.
„Sérfræðingarnir segja kerfin okkar við að bresta og vilja fletja kúrfuna og við vitum hvað það þýðir, en ríkisstjórnin bíður samt enn átekta. Hvert er planið?“ spyr hann.
„Ef ákvörðun hefur nú verið tekin um að bólusetning sé næg vörn og að öðru leyti eigi að láta pestina ganga yfir með það fyrir augum að flestir Íslendingar muni hvort eð er á endanum smitast (það þarf ca 75% smit meðal landsmanna til að hjarðónæmi verði náð) er rétt að segja það og taka opinskáa umræðu opinberlega um það heilsufarslega tjón sem slíkt gæti haft í för með sér. Klárt er að sérfræðingarnir mæla ekki með þeirri leið. Hver er „ásættanlegur fórnarkostnaður“ við það að gera ekki neitt andspænis fórnarkostnaðinum við hertar aðgerðir?“ spyr Björn Ingi enn fremur.
Hann segir ljóst að núverandi takmarkanir dugi ekki til að hefta útbreiðslu veirunnar í fjórðu bylgju faraldursins. „En ríkisstjórnin er greinilega hikandi við það að grípa til hertra aðgerða rétt fyrir kosningar sem verða umdeildar og óvinsælar þar sem mikill þorri fólks er bólusettur og mikill minnihluti veikist alvarlega. Eðlilega.“
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur sagt að boltinn sé nú hjá stjórnvöldum, þar liggi ábyrgðin á næstu skrefum.
„Sóttvarnalæknir er ekki í framboði og getur ekki annað en varað við í samræmi við sitt lögbundna hlutverk. En við landsmenn eigum rétt á því að vita hvert planið er núna og ræða það opinskátt. Vonandi sýnir ríkisstjórnin á spilin sín eftir fund sinn á morgun. Það er enginn kostur góður í stöðunni meðan ný og ný afbrigði skapa nýjar og nýjar bylgjur næstu árin. Já, næstu árin.“