Björn Ingi spurði um lands­leikinn í kvöld: Sýndur í lokaðri dag­skrá – Þessu svaraði Víðir

Björn Ingi Hrafns­son, rit­stjóri Viljans, varpaði á­huga­verðri spurningu fram á upp­lýsinga­fundi al­manna­varna nú í morgun.

Eins og flestir vita fer einn mikil­vægasti lands­leikur í sögu ís­lenska karla­lands­liðsins fram í kvöld þegar við mætum Ung­verjum í Búda­pest í úr­slita­leik um hvort liðið fær sæti í loka­keppni Evrópu­mótsins næsta sumar. Leikurinn verður sýndur í beinni út­sendingu á Stöð 2 Sport sem er á­skriftar­stöð.

Björn Ingi sagði að margir hefðu á­hyggjur af því, þar sem leikurinn er í lokaðri dag­skrá, að margir myndu kannski reyna að fara í heim­sóknir til að horfa á leikinn. Spurði hann hvort nú væru ekki réttu að­stæðurnar til að hvetja til þess að leikurinn yrði sýndur í opinni dag­skrá.

Víðir sagði að spurningin væri á­huga­verð og hann hefði fengið á­bendingu um þetta í gær. Hann hafi skoðað málið og komist að því að hægt sé að kaupa að­gang að leiknum fyrir þúsund krónur. „Það er 1/3 af verði ó­dýrasta miða sem öllu jafna er í boði á lands­leiki. Kannski er upp­hæðin ekki af þeirri stærðar­gráðu að það ætti að hindra fólk í að kaupa miða á leikinn,“ sagði Víðir.