Björn Ingi skynjar undiröldu: Stórra tíðinda að vænta?

Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans og fyrrverandi borgarfulltrúi, segist skynja undiröldu í stjórnmálunum sem gæti falið í sér mikil tíðindi.

Mjög hefur gustað um ríkisstjórnina í kjölfar útboðs á hlut ríkisins í Íslandsbanka og í kjölfarið á ummælum Sigurðar Inga Jóhannssonar í garð framkvæmdastjóra Bændasamtakanna á dögunum.

„Innan Framsóknar og VG kraumar meiri pirringur með stjórnarsamstarfið en verið hefur lengi. Svona hefur stemningin ekki verið í fimm ár. Inn í þetta blandast kosningabarátta á sveitastjórnarstiginu og hver flokkur reynir að verja sína stöðu. Sjálfstæðisflokkurinn verst af hörku enda sótt að formanninum, en taka hinir stjórnarflokkarnir undir? Nú reynir enn á stjórnkænsku forsætisráðherrans. Vika er langur tími í pólitík,“ segir Björn Ingi á Facebook-síðu sinni.