„Maður skynjar aukna bjartsýni í samfélaginu með hækkandi sól undanfarinna daga; við erum farin að skynja ljósið við enda ganganna,“ segir fjölmiðlamaðurinn Björn Ingi Hrafnsson á Facebook-síðu sinni.
Björn Ingi, sem hefur verið áberandi á upplýsingafundum vegna kórónuveirunnar og er höfundur bókar um veiruna, Vörn gegn veiru, segist gleðjast yfir hverjum og einum sem fær bólusetningu.
„Það er eina leiðin í vörn gegn veiru sem lamað hefur eðlilegt líf í rúmt ár og mun bjóða okkur upp á ný og ný afbrigði og stökkbreytingar næstu árin. Samstaða og skynsemi, byggð á faglegri þekkingu, hefur fleytt okkur langt og þess vegna er eðlilegt og sjálfsagt að hlakka til sumarsins og samveru með fjölskyldu og vinum,“ segir Björn Ingi sem minnir þó á eitt mikilvægt.
„Pössum okkur bara að klúðra þessu ekki á endasprettinum með því að láta kappið bera skynsemina ofurliði. Munum að það þarf svo lítið til að ný bylgja fari af stað. Hjarðónæmi er enn langt undan,“ segir Björn Ingi sem sjálfur kveðst hlakka til að fá skammtinn sinn. Hann sættir sig þó vel við að vera aftarlega í röðinni.
„Held bara áfram að spyrja spurninga á meðan. Njótið næstu daga.“