Björn Ingi segir Þórólf hafa gert mistök: „Margir á Landspítalanum supu hveljur“

Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans og höfundur bókar um baráttuna hér á landi gegn kórónuveirufaraldrinum, segir að enginn hafi misskilið þau orð sem Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir lét falla í útvarpsþættinum Sprengisandi í gærmorgun.

Mikið hefur verið fjallað um viðtalið en þar lét Þórólfur að því liggja að til að ná hjarðónæmi í samfélaginu þyrfti veiran að fá að ganga um samfélagið, en þó án þess að spítalakerfið færi á hliðina.

Þessi ummæli Þórólfs vöktu mikla athygli enda virtist hann boða meiriháttar stefnubreytingu í baráttunni gegn veirunni. Í kvöldfréttum RÚV í gærkvöldi var hann spurður frekar út í þessi ummæli og þar dró hann nokkuð í land. Sagði að orð hans hefðu ekki verið túlkuð rétt.

„Þetta er alla­vega ekki al­veg rétt. Hvort sem ég hef sagt þetta ekki nógu skýrt eða hvort til­vitn­un­in er eitt­hvað skrít­in. Auðvitað er þetta ekki þannig að veir­an verður lát­in geisa hér yfir allt. Það hef­ur aldrei verið stefn­an,“ sagði hann og bætti við að takmarkið væri að ná hjarðónæmi á einn eða annan hátt.

Björn Ingi gerði málið að umtalsefni í færslu á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi þar sem hann sagði meðal annars:

„Með allri virðingu fyrir okkar góða sóttvarnalækni, þeim sómamanni, þá misskildi enginn orð hans í Sprengisandi í morgun. Hann boðaði þar algjöra stefnubreytingu í baráttunni við veiruna; í ljósi bólusetningar flestra landsmanna yrði nú veiran að ganga um samfélagið þar til hjarðónæmi yrði náð og áherslan yrði að vera á að verja viðkvæmustu hópana næstu 1-2 árin.“

Björn Ingi segist hafa spurt Kamillu staðgengil hans, Víði Reynisson yfirlögregluþjón og Pál Matthíasson, forstjóra Landspítalans um málið og hvort þessi nálgun væri gerleg á upplýsingafundi síðastliðinn fimmtudag. Segir hann að þau hefðu neitað því, kerfin myndu bresta og ekki yrði hægt að hjálpa öllum þeim sem þyrfti að hjálpa.

„Viðtalið við Þórólf var því klár stefnubreyting og margir hváðu; ég veit til þess að margir á Landspítalanum supu hveljur, enda sænska leiðin svokallaða ekki hátt skrifuð til þessa hér á landi. Í ljósi þessara viðbragða dregur Þórólfur nú í land og er það vel. Hann hefur staðið sig vel og allir gera mistök. En misskilningur var það ekki…“