Björn Ingi segir ríkisstjórnina standa frammi fyrir tveimur slæmum kostum

Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans og höfundur bókarinnar Vörn gegn veiru, segir að ríkisstjórninni sé vandi á höndum nú þegar rétt rúmur mánuður er til kosninga. Hann fer yfir þetta í pistli í dag sem birtist á vef Viljans.

Hann bendir á að aldrei þessu vant hafi ekki verið blásið til upplýsingafundar þennan fimmtudaginn þó að smittölur séu í hæstu hæðum og hafi verið undanfarnar vikur. Björn Ingi segir að ríkisstjórnin liggi yfir minnisblaði Þórólfs Guðnasonar sóttvarnarlæknis um horfur í faraldrinum, en Þórólfur hefur lagt til ýmsar aðgerðir á landamærunum og innanlands á meðan á faraldrinum stendur.

„Við þessar aðstæður er ríkisstjórninni mikill vandi á höndum rétt fyrir kosningar. Fari hún að tillögum sóttvarnalæknis er hætt við mikilli óánægju í samfélagi þar sem flestir eru bólusettir og alvarleg veikindi enn fátíð, sem betur fer. Atvinnulífið mun verða fyrir þungu höggi, skemmtana- og veitingageirinn sér fram á erfið misseri, jafnvel ár, og þúsundir landsmanna á þúsundir ofan munu lenda í sóttkví næstu vikur og mánuði.“

Björn Ingi segir að vandinn verði ekkert minni ef ríkisstjórnin ákveður að nú sé komið gott og ekki sé talin ástæða til að taka undir varnaðarorð Þórólfs.

„Þá verður það stóra málið rétt fyrir kosningar, að pólitíkin sé hætt að hlusta á sérfræðingana og flokkar á borð við Flokk fólksins og Sósíalistaflokkinn munu njóta góðs af því,“ segir hann.

Björn Ingi segir að það sé ekkert skrýtið að ekki sé blásið til upplýsingafundar við þessar aðstæður. „Það liggur enda fyrir hverju þau mæla með. Boltinn er hjá ráðherrunum og þeir vita manna og kvenna best að kosningar nálgast óðfluga.“