Björn Ingi segir pabba líka getað verið þreytta: „Þögnin og að bíta alltaf harðar á jaxlinn er ekki nein langtímalausn“

Fjölmiðlamaðurinn Björn Ingi Hrafnsson opnaði sig um tilfinningar sínar á Instagram síðu sinni í gær, þar sem hann sagðist hafa verið lítill í sér og þreyttur eftir heilmikla keyrslu og átök undanfarin misseri, og segist hafa fengið mikil viðbrögð við málinu.

Engin ástæða væri til að hafa áhyggjur en vill hann ítreka að „pabbar gætu líka orðið þreyttir og leiðir.“ Sjálfur lýsir hann því að hann hafi lengi vel gert lítið úr sínum eigin tilfinningum en með auknum þroska þá hætti maður slíku.

Hann segir karlmenn oft upplifa að þeir eigi ekki að tjá tilfinningar sínar og mörgum finnist erfitt að segja frá. „Við eigum alltaf að vera svo orkumikil og hress og fullkomin að það gleymist að raunveruleikinn og hversdagurinn er allt annar,“ segir Björn Ingi um málið.

„Við pabbarnir horfum á mömmur á samfélagsmiðlum sem endalaust virðast vera að baka, elda, sauma eða prjóna glæsiföt. Ég kann varla eina teygjugreiðslu meðan sumar mömmur virðast ráða við fimmtán ólíkar gerðir,“ segir Björn Ingi.

Hann segist þó elska börnin sín meira en allt og hann sinni þeim eins vel og hann getur en þegar bugun gerir vart við sig sé mikilvægt að viðurkenna það og hlaða batteríin.

„Við erum öll að gera okkar besta, dagarnir eru misjafnir og lífið margbreytilegt,“ segir hann. „Þögnin og að bíta alltaf á jaxlinn er ekki nein langtímalausn. Og vitiði hvað? Dagurinn í dag var miklu betri, strax frá fyrsta kaffibollanum.“