Færsla Björns Inga Hrafnssonar á Facebook í gær þar sem hann hnyklaði magavöðvana og greindi frá lífstílsbreytingum sínum vakti mikla athygli. Ýmsir kepptust við að ausa hann lofi og sögðu hann góða fyrirmynd fyrir marga þá sem vilja breyta til og stuðla að heilbrigðari lífstíl.
Þó eru ekki allir jafn sáttir við færslu Björns Inga. Þar sagði hann meðal annars „Ekki var hægt að bjóða dóttur minni upp á feitan pabba sem gæti ekki leikið við hana eða lifað með henni fram á fullorðinsár.“
Þessi setning hefur farið þveröfugt ofan í marga á netheimum, þar á meðal samfélagsmiðlastjörnuna Ernu Kristínu Stefánsdóttur.
Erna, sem gengur undir nafninu Ernuland á samfélagsmiðlum, hefur farið mikinn á netheimum í baráttu sinni fyrir jákvæðri líkamsímynd undanfarin ár og segir Björn gera lítið úr feitum einstaklingum:
„Ég veit um fult af feitum pöbbum sem eru algjörlega frábærir í feðrahlutverkinu. Enda kemur holdafar því ekkert við. Ef þú telur þig verða betri pabba því þú ert ekki feitur þá fyrst ertu að misskilja hvað felur í sér að vera góður pabbi. Annars gleðilegan feðradag,“ segir Erna.
Twitter-notandi sem kallar sig Strúnu leggur orð í belg undir færslu Ernu: „Aumingjans barnið, hvað átti það að gjalda????? Ekki getur það átt "feitann" pabba.“
Erna svarar henni og tekur undir: „Segðu....trúlega það sem hún segir á feðradaginn í framtíðinni: Pabbi er frábær, kenndi mér margt og svo er hann ekki feitur sem er algjör kostur fyrir mig sem dóttur.“
Þá kemur Guðrún nokkur með reynslusögu: „Aaaa já einmitt! Pabbi var náttúrulega með bumbun og þess vegna hvarf hann í 7 ár! Hefði hann verið grannur þá hefði bara ekki verið svona einrænn ( og líklega með ógreinda einhverfu!!). Reyndar er upplifun mín á læknum sú að fólk með bumbu þurfi mun lengur að berjast við kerfið til að fá greinda sína sjúkdóma/heilkenni… en það er önnur umræða“
María nokkur kveðst vera feit móðir: „En nú er ég t.d. feit mamma, ætti ég að hafa áhyggjur af sonum mínum þremur?“
Ekki allir Twitter-notendur eru sammála Ernu. Anna nokkur segir: „Æi aumingja þið konurnar sem þolið greinilega ekki þegar feðrum langar að breyta til hjá sér til að td geta leikið við barnið sitt og hlaupið um allt með því! Feitur er ekki að geta leikið né hlaupið eftir barninu sínu því feitur Pabbi hefur ekkert þol! Ekki vera svo fórdómafull!“
Inga Auðbjörg Straumland, formaður Siðmenntar og eiginkona Helga Hrafns Gunnarssonar, svarar Önnu og grípur til varnar fyrir Ernu: „Það að setja þol upp sem einhverja grunnstoð þess að leika við barnið sitt er eitthvað alveg sjúklega ableískt sjitt. Svo er bara fullt af feitu fólki með fínt þol og mjóu fólki með ekkert þol, svo ég skil ekki alveg punktinn.“
Erna tekur undir með Ingu: „Nefninlega svo sammála Inga. Ég er enn að lesa þetta komment & reyna að átta mig á því.“
Þá deilir Ragga nokkur færslu Ernu og segir: „Aumingja börn feitu pabbanna“
TW
— ernuland (@ernuland) November 15, 2021
Ég veit um fult af feitum pöbbum sem eru algjörlega frábærir í feðrahlutverkinu. Enda kemur holdafar því ekkert við. Ef þú telur þig verða betri pabba því þú ert ekki feitur þá fyrst ertu að misskilja hvað felur í sér að vera góður pabbi.
Annars gleðilegan feðradag. pic.twitter.com/FjPxc0eBOG