Björn Ingi pantar sér Dominos næst: „Glötuð innsýn í heim viðskiptamanns“

„Ákaflega glötuð innsýn í heim viðskiptamanns. Eitt er að ætla sér að gera góða hluti í sínum rekstri, annað að hafa að markmiði að keyra stóran vinnustað í þrot. Panta mér Domino´s næst.“

Þetta segir Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri og fyrrverandi borgarfulltrúi, á Facebook-síðu sinni.

Óhætt er að segja að ummæli Þórarins Ævarssonar, stofnanda og framkvæmdastjóra pizzustaðarins Spaðans, í þættinum Dagmál á Morgunblaðinu í gær hafi vakið athygli. Þar sagði Þórarinn berum orðum að hans markmið væri að keyra sinn stærsta samkeppnisaðila, pizzukeðjuna Dominos, í þrot á næstu árum.

Þórarinn er ekki þekktur fyrir að liggja á skoðunum sínum, en hann var í hópi þeirra sem föluðust eftir því að kaupa keðjuna fyrir ekki svo löngu. Þegar hann var spurður út í það hvers vegna hann gerði tilboð í Dominos sagði hann meðal annars:

„Þar ætlaði ég að breyta til og laga. Í staðinn fyrir að taka 5 ár í að koma Dominos á hausinn, sem ég ætla að gera, þá hleyp ég bara inn og gleypi þá og breyti markaðnum varanlega.“

Margir taka undir með Birni Inga í færslu hans og segir til dæmis Árni Samúelsson, eigandi Sambíóanna: „Rugluð yfirlýsing frá honum.“

Hjá Dominos virtust menn taka yfirlýsingu Þórarins með ró en í gærkvöldi birtist meðfylgjandi auglýsing á samfélagsmiðlum sem var augljóslega beint að Spaðanum:

Við erum svo sannarlega stoltur stuðningsaðili allra! 🍕 Gleðilegt sumar ☀️🍕

Posted by Domino's Pizza - Ísland on Fimmtudagur, 22. apríl 2021