Birni Inga ekki skemmt: „Það getur ekki verið að það liggi svona á að þagga niður í mér“

Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóra Viljans, er ekki skemmt eftir að greint var frá því að Lífeyrissjóðurinn Gildi hefði farið fram á gjaldþrotaskipti hjá Viljanum samkvæmt dagskrá Héraðsdóms Vesturlands.

Mannlíf greindi frá þessu í morgun en í október síðastliðnum greindu fjölmiðlar frá því að Sýslumaður hefði farið fram á gjaldþrotaskipti á félaginu. Beiðnin var síðar afturkölluð. Björn Ingi er langt því frá sáttur eins og sést í færslu hans á Facebook nú eftir hádegi:

„Í annað sinn les ég fyrst um slíkt í fjölmiðlum, jafn fáránlegt sem það er og algjörlega að tilefnislausu. Það er engin skuld við þennan lífeyrissjóð, það voru gerð mistök í einni skilagrein og margoft búið að útskýra það. Það hefur aldrei neinn starfað hjá Viljanum sem greiðir í þennan lífeyrissjóð. Meint skuld er innan við 50 þúsund krónur, hvorki meira né minna,“ segir Björn Ingi sem heldur áfram:

„Það er nógu erfitt að standa í baráttunni og halda sjó, þótt ekki sé sífellt vitlaust gefið með þessum hætti. Þetta fer aftur af dagskrá Héraðsdóms, enda átti það aldrei að fara þangað. Mér er ekki skemmt yfir ítrekuðum tilraunum til að taka mann niður, það getur ekki verið að það liggi svona á að þagga niður í mér.“

Eftir að greint var frá fyrri gjaldþrotaskiptabeiðninni gagnrýndi Björn Ingi það að þurfa að lesa svona fréttir um sig í fjölmiðlum án þess að hafa fengið sjálfur tilkynningu um efnið eða tækifæri til að bregðast við.

„Líklega á það við sem einn góður vinur sagði, að Björn Ingi á Viljanum sé ekki slæmt fréttaefni. Knús á ykkur öll,“ sagði hann einnig.

Ég sé að Mannlíf slær því upp að Lífeyrissjóðurinn Gildi hafi farið fram á gjaldþrotaskipti hjá Viljanum skv. dagskrá...

Posted by Björn Ingi Hrafnsson on Miðvikudagur, 3. mars 2021