Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans og höfundur bókarinnar Vörn gegn veiru, myndi glaður þiggja skammt af bóluefninu frá Oxford-háskóla og AstraZeneca, strax í dag, ef sóttvarnayfirvöld hér á landi eru hikandi við að koma því út.
Þetta segir Björn Ingi í færslu á Facebook-síðu sinni.
Eins og kunnugt er hafa margir þjóðir, Ísland þar á meðal, hætt að gefa bóluefnið eftir að greint var frá því að nokkrir þeirra sem fengu bóluefnið fengu í kjölfarið blóðtappa. Bóluefnið hefur þegar verið gefið 17 milljónum manna í Evrópu og hafa nokkrir tugir greinst með blóðtappa.
Björn Ingi bendir á í færslu á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi að tugir milljóna manna hafi fengið bóluefnið undanfarnar vikur. Aukaverkanir séu hverfandi í hlutfalli við fjölda bólusettra og mun minni en þekkist hjá mörgum lyfjum sem við notum að staðaldri.
„Það eru til dæmis tölfræðilega meiri líkur á að konur fái blóðtappa af völdum getnaðarvarnapillunnar en af þessu bóluefni. Ávinningurinn af því að verja fólk fyrir veirunni er miklu meiri en áhættan, eins og sérfræðingar WHO bentu á í kvöld,“ segir Björn Ingi en Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin sagði í gær að ekkert benti til þess að bóluefnið AstraZeneca valdi blóðtappa.