Björn Ingi: Margir í sárum – „Þyngra en tárum taki“

„Ekki veit ég fremur en aðrir hvað gekk á í „gleðihófi“ kvennalandsliðsins eftir sigurinn frækna í vikunni. En hitt veit ég að þarna sést á einstaklega skýran hátt hvernig áfengi getur í einu vetfangi varpað skugga á það sem átti að vera gleði og afleiðingarnar tekið yfir allt sviðið.“

Þetta segir Björn Ingi Hrafnsson, fjölmiðlamaður í pistli á Facebook-síðu sinni.

Þar gerir hann málefni kvennalandsliðsins að umtalsefni en greint var frá því í gær að Jón Þór Hauksson, þjálfari liðsins, hefði farið yfir strikið í samskiptum sínum við leikmenn landsliðsins þegar liðið fagnaði sæti sínu í lokakeppni Evrópumótsins.

Var hann sagður hafa látið niðrandi ummæli falla um ákveðna leikmenn liðsins, en áfengi var haft um hönd.

„Allir sem glíma við fíkn þekkja þetta, að ekki sé minnst á aðstandendur. Hversu margar gleðistundir hafa snúist upp í martröð vegna ótæpilegrar áfengisneyslu? Þegar eitt glas varð að fleirum og dómgreindin fór í vaskinn með óhreina leirtauinu,“ segir Björn Ingi sem sjálfur hefur verið edrú í eitt og hálft ár.

„Það sem ætti að standa eftir er að landsliðið náði stórkostlegum árangri, stúlkurnar eru hetjur, þjóðin gleðst og þjálfarinn er með hærra vinningshlutfall en nokkur annar sem gegnt hefur sambærilegri stöðu. Það er þyngra en tárum taki að það sé ekki umræðuefnið nú, heldur eitthvað allt annað sem gerðist þegar „aðeins átti að sletta úr klaufunum“ eftir ríkulega uppskeru. Og nú eru margir í sárum og gleðin hefur vikið fyrir sorg og leiðindum.“

Björn Ingi hefur talað opinskátt um áfengisneyslu sína en hann setti tappann í flöskuna sumarið 2019.

„Ég þakka fyrir hvern dag sem áfengið er ekki að trufla mína dómgreind eða gera líf mitt verra. Sama á við um aðra sem náð hafa bata og fjölskyldur þeirra, samanber magnaða dagskrá í þættinum um SÁÁ í Ríkissjónvarpinu í gær. Það er allt betra edrú, þótt á ýmsu gangi í lífinu.“