Björn Ingi Hrafnsson er kominn til Úkraínu. Hann keypti sér miða aðra leiðina og viðurkennir að hann sé hræddur í samtali við Vísi.
Björn Ingi segir óvíst hvenær hann kemur aftur heim. „Það er ekki hægt að nýta blaðamannapassann betur en þegar maður kaupir bara miða aðra leiðina. Þetta verður allt að koma í ljós hvenær ég kem heim.“
Hann segist þegar vera kominn með mikið efni. Í ljós mun koma hvað hann geri við þetta. „Að við skulum vera stödd á árinu 2022 þar sem fólk er að hlaða upp sandpokum á götum úti, ég þurfti að fara í loftvarnarbyrgi í nótt, við forréttindafólkið höfum gott af því að upplifa þetta því þetta er svo nálægt okkur.“
Hann segist ekki ætla að taka mikla áhættu. „Það er nú bara þannig að það er ekkert merkilegra í heiminum en akkúrat þetta.“