Björn Ingi í­trekað spurður hvort hann ætli í bólu­setningu – Svona svarar hann

„Ég hef í­trekað verið spurður að undan­förnu hvort ég ætli að láta bólu­setja mig þegar röðin kemur að mér,“ segir Björn Ingi Hrafns­son, rit­stjóri Viljans og höfundur bókarinnar Vörn gegn veiru, í pistli á vef Viljans.

Í pistlinum greinir Björn Ingi meðal annars frá því að hann vinni nú að fram­haldi bókar sinnar sem kom út í haust. Gerir Björn Ingi ráð fyrir að nýja bókin komi út um það leyti sem búið verður að bólu­setja megin­þorra þjóðarinnar, lok mars eða þar um bil.

Björn Ingi gerir ein­mitt bólu­setningar gegn veirunni að um­tals­efni en nú er farið að hylla undir það að bólu­efni komist í al­menna dreifingu.

Hann segist í­trekað hafa verið spurður að því hvort hann ætli að fá bólu­efni.

„Einkum hafa þeir spurt sem hafa efa­semdir um hraða þróun bólu­efnanna, eru hræddir við mögu­legar auka­verkanir og óttast sam­fé­lags­legan þrýsting eða jafn­vel laga­skyldu um bólu­setningar við þessar að­stæður,“ segir Björn Ingi en það er skemmst frá því að segja að hann ætlar að þiggja bólu­efni þegar röðin kemur að honum.

„Mark­mið bólu­setningar er að vernda fólk fyrir CO­VID-19 og að ná upp hjarðó­næmi sem hindrar út­breiðslu far­aldursins hér á landi og um alla heims­byggðina. Það er ekkert smá verk­efni. Þór­ólfur sótt­varna­læknir hefur sagt að til þess að ná hjarðó­næmi þurfi að bólu­setja um 60% þjóðarinnar. Það eru mörg hundruð þúsund skammtar, sé tekið til­lit til þess að stærstur hluti þeirra sem fæddir eru fyrir 2005 verði bólu­settir. Ég tel því sam­fé­lags­lega mikil­vægt að taka þátt, bæði til að verja mig og aðra og stuðla að hinu lang­þráða hjarðó­næmi sem leggur far­aldurinn að endingu að velli. Því fleiri sem hugsa eins, þeim mun fyrr náum við því mark­miði og getum aftur horft fram á eðli­legt líf. Með fé­lags­legum at­höfnum, ó­skertu at­hafna­frelsi og upp­risu heilu at­vinnu­greinanna. Það er því til mikils að vinna.“

Björn Ingi vísar í orð Svan­dísar Svavars­dóttur heil­brigðis­ráð­herra þess efnis að hún vonaðist til þess að þessum um­fangs­mestu bólu­setningum í sögu þjóðarinnar verði lokið að mestu fyrir lok fyrsta árs­fjórðungs 2021.

„Það er í mars­lok. Það er þá lík­lega við­eig­andi að um það leyti komi út seinna bindi bóka­flokksins Vörn gegn veiru eftir mig, þar sem seinni hluti veirufar­aldursins hér á landi er skrá­settur; farið yfir at­burði á borð við hóp­smitið á Landa­koti, vaxandi deilur um sótt­varna­ráð­stafanir og pólitíska spennu sam­fara kólnun at­vinnu­lífsins. Sú bók er langt komin, en skrifar sig eigin­lega sjálf þessa dagana og þetta væri því kjörinn tími fyrir út­gáfuna. Ég leyfi mér að vona að við­tökurnar verði jafn góðar og með fyrri bókina sem kom út í haust.“

Hér má lesa pistil Björns Inga í heild sinni.