„Margir eru atvinnulausir eða horfa fram á atvinnumissi og þurfa að lifa á bótum meðan aðrir hafa meira að gera en nokkru sinni fyrr og finna ekki fyrir neinum samdrætti,“ segir Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans.
Björn Ingi skrifar um stöðu mála hér á landi á tímum kórónuveirunnar, en hún hefur haft áhrif víða. Margir hafa misst vinnuna, ferðaþjónustan er í dvala og listamenn hafa haft lítið að gera undanfarna mánuði vegna samkomutakmarkana. Eins og Björn Ingi bendir á finna ekki allir fyrir þessu.
„Þessi kreppa er hagfræðilegt undrunarefni og samfélagslegt áhyggjuefni,“ segir Björn Ingi á Facebook og bendir á að sumir séu alveg öruggir í starfi á meðan aðrir bíða eftir að röðin komi að þeim í uppsagnahrinunni.
„Húsnæði rýkur út, jafnvel á yfirverði og málning og efni til viðhalds og framkvæmda stoppar varla við í verslunum,“ segir hann og bætir við: „Það er eitthvert undarlegt svikalogn í gangi; eins og allir voni að niðursveiflan vari stutt og láta því sem ekkert sé.“
Björn Ingi, sem nýlega sendi frá sér bókina Vörn gegn veiru, segir að fólk nýti sér lága vexti og endurfjármagnar til þess að þreyja þorrann eða halda veislunni áfram.
„Margir verslunarmenn segja mér að veltan nú sé líkast því sem er í desember, meðan aðrir kvarta yfir þvi að ekkert sé að frétta og allt sé stopp. Það getur raskað samfélagsfriðnum þegar skellurinn leggst svo misjafnlega á fólk. Hrunið 2008 var einhvern veginn yfir alla línuna, en þetta er allt öðruvísi.“