Björn Ingi: Fjórir á Land­spítalanum með CO­VID-19 og einn á gjör­gæslu

Fjórir eru nú á sjúkra­húsi með CO­VID-19 og þar af er einn á gjör­gæslu­deild. Þetta kemur fram í frétt á vef Viljans sem fjöl­miðla­maðurinn Björn Ingi Hrafns­son heldur úti. Björn Ingi er höfundur bókarinnar Vörn gegn veiru.

„Þetta er því miður allt eftir bókinni. Nú fer hluti þeirra sem greindist fyrir viku eða svo, að veikjast al­var­lega. Vonandi tekst hinu frá­bæra starfs­fólki okkar á spítalanum að eiga við það sem fram­undan er, svo allir komist heilir aftur heim. Biðjum fyrir því,“ segir Björn Ingi í færslu á Face­book-síðu sinni hvar hann deilir frétt Viljans.

Björn ingi ræddi við þá Kára Stefáns­son og Þór­ólf Guðna­son um helgina. Sagði Þór­ólfur að það myndi ráðast um helgina hvort gripið yrði til harðari að­gerða til að hefta út­breiðslu veirunnar.

Frétt Viljans.

Þetta er því miður allt eftir bókinni. Nú fer hluti þeirra sem greindist fyrir viku eða svo, að veikjast alvarlega....

Posted by Björn Ingi Hrafnsson on Sunnudagur, 27. september 2020