Björn Ingi farinn að efast og skrifar Þórólfi opið bréf

Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans og sá fjölmiðlamaður sem hefur verið hvað mest áberandi í fréttaflutningi af COVID-19, skrifaði Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni opið bréf í gærkvöldi.

Þórólfur hefur verið tregur til að draga úr öllum takmörkunum hér á landi og borið því við að huga þurfi að öðrum pestum, inflúensu og RS-vírusnum til dæmis. Huga þurfi að álaginu á Landspítalann.

Björn Ingi tekur fram í bréfinu, sem má lesa í heild sinni á vef Viljans, að hann hafi fylgst mjög vel með stöðunni hér á landi og notið þess að eiga frábær samskipti við Þórólf. Þá hafi þjóðin verið heppin að njóta leiðsagnar hans í faraldrinum, sérstaklega í byrjun þegar óvissan var gríðarleg. Nú sé staðan önnur og betri og Íslendingar hafi svarað kalli hans og fylgt leiðbeiningum í hvívetna.

„En einmitt vegna þess að við höfum staðið okkur svo vel og fylgt leiðbeiningum þínum og hollráðum samviskusamlega, skynja ég nú mikla óánægju og pirring yfir því að ekki gangi hraðar en raun ber vitni að slaka á samkomutakmörkunum og skerðingu á persónufrelsi okkar borgaranna. Skerðingu sem var algerlega fordæmalaus og átti alltaf aðeins að vera tímabundin.“

Björn Ingi bendir á að hin Norðurlöndin hafi aflétt takmörkunum og margar aðrar þjóðir. Hér á landi gildi enn takmarkanir og margir séu óánægðir með það.

„Ekki síst með þær röksemdir þínar að aðrir þættir á borð við inflúensu og RS-vírusinn geti gert það að verkum að neyðarástand skapist í heilbrigðiskerfinu og þess vegna þurfi að fara varlega.

Það er eflaust margt til í þeim áhyggjum þínum sem sóttvarnalæknis, en við vitum auðvitað vel að hættan af RS-vírus eða inflúensu hefði ein og sér aldrei leitt til þess að skellt hefði verið á samkomubanni eða takmörkunum á frelsi fólks. Við hefðum verið beðin að fara varlega og passa okkur og börnin okkar, en lengra hefði ekki verið gengið í því. Og þess vegna virkar það nú, eins og þú sem sóttvarnalæknir sért farinn að finna ný og ný rök fyrir því að halda óbreyttum ráðstöfunum. Ef ekki út af COVID-19, þá bara einhverju öðru.“

Björn Ingi telur að það sé hvorki skynsamlegt né framkvæmanlegt í nútímasamfélagi og færir rök fyrir því. Hvetur hann Þórólf til að gæta að samstöðunni áfram. „Hún verður ekki áfram til staðar, ef nýjar og nýjar ástæður koma fyrir þeim reglum sem gilda og eru strangari en annars staðar.“

Bréf Björns Inga til Þórólfs í heild sinni.