Björn Ingi fagnar tímamótum: „Þrjú ár frá því ég bragðaði síðast áfengi“

Fjölmiðlamaðurinn og borgarfulltrúinn fyrrverandi Björn Ingi Hrafnsson fagnar því í dag að þrjú ár eru liðin síðan hann bragðaði síðast áfengi.

Margt hefur drifið á daga Björns Inga undanfarin misseri og var hann sá fjölmiðlamaður sem var einna mest áberandi í umfjöllun um kórónuveirufaraldurinn.

„Þrjú ár frá því ég bragðaði síðast áfengi. Þannig mjakast þetta, en risaskrefin felast í betri heilsu og heilbrigðara gildismati,“ segir Björn Ingi á Facebook-síðu sinni og heldur áfram:

„Mæli með þessu fyrir alla sem vilja vera meira til staðar fyrir það sem mestu máli skiptir og ná stjórn á eigin lífi. Það er aldrei of seint að horfast í augu við sjálfan sig og besta ákvörðun sem hægt er að taka. Með Guðs hjálp og góðra manna.“