Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans og höfundur bókar um kórónuveirufaraldurinn hér á landi, segir að engin þörf sé á því að herða aðgerðir innanlands að svo stöddu.
Um hundrað kórónuveirusmit greindust hér á landi í gær og virðist ýmislegt benda til þess að hápunkti fjórðu bylgju faraldursins hafi verið náð um liðna helgi.
„Ef við náum að halda smitum í jafnvægi og án þess að það hlaupi veldisvöxtur í faraldurinn, er vel hægt að nýta bólusetningu landsmanna til að halda nokkurn veginn eðlilegu lífi þar sem hver og einn gætir að sínum sóttvörnum. Þótt hundrað manns eða svo greinist á hverjum degi eru veikindi hvorki almenn né alvarleg, þökk sé bólusetningunni,“ segir Björn Ingi og bætir við að blessunarlega virðist verslunarmannahelgin ekki hafa hleypt nýjum krafti í faraldurinn.
„Það þarf að leggja alla áherslu á að styrkja Landspítalann til að takast á við veikindi þeirra sem þess þurfa og við hin að passa okkur en gleyma heldur ekki að lifa lífinu. Þróun síðustu daga kallar ekki á hertar aðgerðir (enda búið að lágmarka leka á landamærunum með aðgerðum sem senn taka gildi) en þeim mun frekar á að við reynum að lifa með veirunni sem mun verða í aðalhlutverki næstu misserin með nýjum afbrigðum. Þannig er framhaldið undir okkur sjálfum komið, eins og oft áður. Vonum það besta og njótum veðurblíðunnar.“