Björn Ingi edrú í 600 daga: „Allt gengið betur síðan“

Fjöl­miðla­maðurinn Björn Ingi Hrafns­son fagnaði því um liðna helgi að hafa verið edrú í 600 daga. Hann fer ekki ofan af því að sú á­kvörðun að hætta að drekka sé sú besta sem hann hefur tekið.

„Allt gengið betur síðan. Mæli ein­dregið með þessu lífi, allt of margir „að sulla“ í Co­vid,“ sagði Björn Ingi í Face­book Story um helgina.

Í fyrra­sumar, þegar Björn Ingi hafði verið edrú í eitt ár, sagði hann frá þeirri á­kvörðun að hætta að drekka og þeim breytingum sem hafa orðið á lífi hans.

„Sá sem viður­­kennir van­mátt sinn og leitar sér hjálpar hefur þurft að horfast í augu við sjálfan sig. Það er ekki alltaf auð­velt. Við erum öll breysk og vildum hafa gert margt á annan veg. Ég er þar engin undan­­tekning. Það er mikill skóli að þurfa að horfast í augu við eigin bresti og reyna að bæta ráð sitt,“ sagði hann meðal annars.