Björn Ingi: „Allar líkur á að annað en bólusetning hafi valdið andlátinu“

Björn Ingi Hrafns­son, rit­stjóri Viljans og höfundur bókarinnar Vörn gegn veiru, hefur litla trú á því að rekja megi þau dauðs­föll á hjúkrunar­heimilum sem greint hefur verið frá undan­farna daga til bólu­efnis Pfizer.

Í til­kynningu sem Lyfja­stofnun sendi frá sér í dag kemur fram að til­kynnt hafi verið um fimm al­var­legar auka­verkanir, þar af fjögur and­lát, sem hugsan­lega kunna að tengjast bólu­setningu við veirunni. Í öllum til­fellum var um að ræða aldraða ein­stak­linga með undir­liggjandi sjúk­dóma sem búa á hjúkrunar­heimilum. Land­læknir, sótt­varna­læknir og for­stjóri Lyfja­stofnunar hafa á­kveðið að fá ó­háða aðila til að fara gaum­gæfi­lega yfir þessi fimm al­var­legu til­vik.

Björn Ingi segir að sjálf­sögðu þurfi að skoða vand­lega hvort eitt­hvert or­saka­sam­hengi er milli bólu­setningar og um­ræddra dauðs­falla í hópi eldri borgara. Þá þurfi að greina hik­laust frá öllum niður­stöðum til að forðast tor­tryggni og að jarð­vegur skapist fyrir sam­særis­kenningar.

„En gleymum ekki að í viku hverri látast 10-20 manns á hjúkrunar­heimilum hér­lendis, oft elsta og við­kvæmasta fólkið. Það var ein­mitt þetta fólk sem var bólu­sett fyrir ára­mót. Það eru því allar líkur á að annað en bólu­setning hafi valdið and­látinu. Er­lendis hafa slík til­felli ekki komið upp enda þar ekki til­kynnt sér­stak­lega um eðli­legan dauð­daga á hjúkrunar­heimilum, þau eru lífsins gangur,“ segir Björn Ingi í færslu sinni á Face­book sem endar með þessum orðum:

„Blessuð sé minning hinna látnu en ég vona að fólk geri sér ljóst að löngu væri búið að stöðva bólu­setningar um allan heim ef bólu­efnið væri svo hættu­legt. Það hefur ekki verið gert, heldur er hafin um­fangs­mesta bólu­setning í sögu mann­kyns og barist um hvern einasta skammt.“