Björn: „Hve­nær er há­marki heimskunnar náð?“

„Væri ég kóróna­veira væri ég nú á leiðinni til Egypta­lands - það er best að slá þar sem grasið er þéttast,“ segir Björn Birgis­son Grind­víkingur í pistli á Face­book-síðu sinni.

Ís­lenska karla­lands­liðið í hand­bolta býr sig nú undir HM í Egypta­landi, en liðið mætir Portúgal í fyrsta leik á fimmtu­dags­kvöldið. Sú á­kvörðun að halda mótið hefur verið um­deild en kórónu­veirufar­aldurinn síst í rénun í heiminum enda bólu­efni rétt ný­komið á markað.

Björn spyr hve­nær há­marki heimskunnar sé náð og bætir við að þeir sem stjórna Al­þjóða­hand­knatt­leiks­sam­bandinu (IHF) hljóti að vera nærri því mark­miði.

„Nokkrum dögum fyrir heims­meistara­mót - sem ó­trú­lega vit­laust er að halda nú - fallast þeir loksins á að leika með tak­mörkuðum á­horf­enda­fjölda - þegar enginn ætti að vera í á­horf­enda­stúkunum.“

Þá bætir hann við að til dæmis Tékkar, Banda­ríkja­menn, Svíar og Brasilíu­menn séu í vand­ræðum vegna veirunnar og örugg­lega fleiri lið líka. Í morgun var til dæmis greint frá því að á­tján leik­menn banda­ríska liðsins væru smitaðir af kórónu­veirunni.

„Til Egypta­lands er stefnt liðum úr öllum hornum heimsins ein­mitt nú þegar veiran er á mikilli siglingu upp á við og bólu­setningar rétt ný­hafnar. Er hægt að hugsa sér betri smit­leið? Er hand­bolti mikil­vægari en líf og heilsa leik­manna og þeirra sem liðunum fylgja?“

Björn segist ekki í nokkrum vafa um að hann myndi skella sér til Egypta­lands ef hann væri kórónu­veira.

„Það hafa alltaf staðið deilur um IHF, á­sakanir um spillingu annað veifið, einnig hlut­drægni - og nú þetta. Því­líkur bjálfa­háttur!“