Björn hrósar Svan­dísi eftir erfiða tíma hennar – „Bogin en ekki brotin. Hún er nagli“

Grind­víkingurinn Björn Birgis­son liggur sjaldnast á skoðunum sínum eins og þeir sem til hans þekkja vita. Hann hikar sjaldnast við að láta menn heyra það ef svo ber undir en hann á sér líka öllu mýkri hlið.

Í færslu á Face­book-síðu sinni hrósar hann Svan­dísi Svavars­dóttur heil­brigðis­ráð­herra í há­stert, en ó­hætt er að segja að hún hafi haft í mörg horn að líta undan­farna mánuði.

„Svan­dís Svavars­dóttir, heil­brigðis­ráð­herra, hefur ekki átt sjö dagana sæla um nokkurt skeið. Erfið veikindi í fjöl­skyldunni og ný­búin að fylgja föður sínum til grafar,“ segir Björn sem bætir við að CO­VID-á­standið hafi ekki verið til að létta henni lífið.

„Til við­bótar því með allt úr­tölu­liðið á bakinu sem gerir allt sem í þess valdi stendur til að gera flest tor­tryggi­legt sem gert er í sótt­vörnum og út­vegun bólu­efnis gegn veirunni og hikar ekki við að gera þá bar­áttu að pólitísku bit­beini - heimsku­legt sem það nú er.“

Björn segir að svo sannar­lega stæðu ekki allir keikir í fram­línunni við þessar að­stæður. „En það gerir Svan­dís Svavars­dóttir. Bogin en ekki brotin. Hún er nagli. Heiður þeim sem heiður ber.“