Björn hefði viljað þjóð­stjórn: „Al­ger­lega klúðrað trú­verðug­leika sínum“

„Það var mín skoðun í vor að það hefði verið eðli­legast að setja á þjóð­stjórn á meðan Kófið varir. Ég er enn á þeirri skoðun en held að það sé farið að verða of seint.“

Þetta segir Björn Leví Gunnars­son, þing­maður Pírata, í að­sendri grein í https://www.mbl.is/mogginn/bladid/grein/1760048/ í dag.

Björn bendir á að kosningar séu haldnar á fjögurra ára fresti en í vor hafi nokkuð gerst sem fáir gátu séð fyrir.

„Heims­far­aldur að um­fangi sem hefur ekki sést í hundrað ár. Allir voru beðnir um að setja sér tak­mörk, jafn­vel í jarðar­förum. Forðist að hitta annað fólk. Haldið ykkur í tveggja metra fjar­lægð. Ekki ferðast. Stjórn­völd settu okkur þessi tak­mörk og báðu okkur um þolin­mæði og skilning sem fólk al­mennt virti. Ó­vissan var mikil og því eðli­legt að fara var­lega. Það eru hins vegar tak­mörk fyrir þolin­mæði. Það eru tak­mörk fyrir ó­vissu. Tak­mörk sem stjórn­völd hafa gengið á að undan­förnu,“ segir Björn.

Hann segir ó­þarfa að rekja hvaða vand­ræði stjórn­völd hafa komið sér í að undan­förnu en minnist þó á þau fyrstu.

„Það var tæki­færi stjórn­valda til þess að leggja fram sína stefnu í vor. Í vor átti að leggja fram fjár­mála­á­ætlun þar sem stjórnin leggur fram stefnu sína til næstu ára. Þar á að koma fram hvernig stjórn­völd hyggjast tryggja festu, stöðug­leika og sjálf­bærni. Hvernig var­færni og gagn­sæi á að ráða för í að­gerðum stjórn­valda. En í stað þess að leggja fram sína stefnu í vor, þegar ó­vissan var sem mest – í stað þess að mæta ó­vissu með stefnu­mörkuðum að­gerðum, þá hafa stjórn­völd hins vegar verið í stöðugri í­hlaupa­vinnu við að hlaupa á milli ein­stakra hags­muna­aðila sem kalla „úlfur, úlfur“. Að mínu mati hafa þetta verið ein helstu mis­tök stjórn­valda, að mæta ekki Kófinu með skýrri stefnu út úr því.“

Björn Leví er þeirrar skoðunar að stjórn­völd hafi valið fálm­kenndar að­ferðir þar sem ó­ljóst var hvernig hags­munir al­mennings væru öruggir. Hvorki var­færni né gagn­sæi hafi verið leiðar­ljós.

Björn segist hafa verið þeirrar skoðunar að eðli­legast hefði verið að setja á þjóð­stjórn í far­aldrinum.

„Ég er enn á þeirri skoðun en held að það sé farið að verða of seint. Þeir flokkar sem eru í ríkis­stjórn hafa al­ger­lega klúðrað trú­verðug­leika sínum um sam­starf á þingi. Stjórn­völd buðu upp á sam­ráðs­vett­vang vegna Kófsins en höfðu ekki sam­band við flokka á þingi sem eru utan ríkis­stjórnar. Samt erum við með þing­bundna stjórn eða eins og Stuð­menn sungu „bara ef það hentar mér“.“