Björn geðlæknir segir að rekja megi mikla geðlyfjanotkun til trúleysis

Björn Hjálmarsson, geðlæknir á barna- og unglingageðdeild Landspítala, BUGL, sagði í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun að aldrei hafi verið fleiri stúlkur á aldrinum 12 til 17 ára fengið uppáskrifuð þunglyndis- eða kvíðalyf á árinu. Ein af hverjum tíu stúlkum eru á slíkum lyfjum.

Hann var spurður út í þessa þróun og hvort læknar væru of æstir að skrifa út geðlyf. Björn sagði þróunina að hluta til skýrast af meira trúleysi. „Sorgin er að verða meira og meira sjúkdómsvædd. Þeir sem eru sanntrúaðir, þeir geta sótt svo mikinn mátt í trúna. Trúarheimspeki, það að geta sótt styrk í æðri mátt, trúin á hið góða, hið fagra og hið fullkomna er mjög góður styrkur,“ sagði hann.

Björn tók fram að hann væri ekkert sérstaklega að tala fyrir kristni.

„Ef við lítum á þjóðararfinn, þá er svo mikil viska í trúnni. Menn þurfa ekkert endilega að trúa á æðri mátt.“

Í dag eigi börn erfiðara með að vinna úr sorg.

„Ég sé það hjá mínum skjólstæðingum á BUGL, það er svo hræðilega algengt að stúlkur komi í djúpri vanlíðan og óski eftir lyfjameðferð eða það er valið að gefa þeim lyf. Það er eins og allar sorgir þeirra í lífinu séu enn óunnar.“