Björn furðar sig á áhrifavöldum og Instagram-vikunnar: „Þetta á heima á síðum Playboy“

„Á þetta að vera kynþokkafullt?,“ spyr Björn Birgisson, samfélagsrýnir í Grindavík, í færslu á Facebook sem hefur vakið mikla athygli en þar beinir hann spjótum sínum að léttklæddum áhrifavöldum og birtingu mynda af Instagram á vefmiðlum.

Nútíminn hóf að birta Instagram-vikunnar fyrir nokkrum árum, DV tók svo við og gerði það að föstum lið á mánudögum. Varð það gríðarlega vinsælt og toppar yfirleitt Mest lesið-listann á mánudögum. Ekki leið á löngu þangað til Vísir tók að birta Stjörnulífið, sem er örlítið klæddari útgáfa af því sem DV er með. Og nú hefur MBL.is byrjað með sama lið á mánudögum. undir heitinu Instagram.

Björn skilur ekkert í þessu: „Eru þetta auglýsingar og þá fyrir hvað? Mikið er þreytandi að geta varla opnað íslenskar vefsíður sem kenna sig við fjölmiðlun án þess að rekast þar á myndir af fáklæddum gervilegum íslenskum smápíkum, oft við aðstæður sem eru ekkert annað en aulalega fáránlegar.“

Hann dregur í efa að þær séu í raun áhrifavaldar:

„Til að fullkomna fáránleikann eru þessar glennupíur oft sagðar vera áhrifavaldar og það meira að segja skrifað sem eitthvað jákvætt! Ef aumkunarvert er orðið jákvætt þá hefur öllu verið snúið á haus!“

Margir taka undir með honum, þar á meðal einn sem segir: „Þetta á heima á síðum Playboy.“

Það eru ekki allir sammála honum:

„Má fólk ekki bara gera það sem það vill? Ég get lofað þér því að þessar dömur eru ekki að reyna að vera kynþokkafullar fyrir öfugsnúna karla út í bæ. Þær eru að njóta lífsins og hafa gaman. Þær birta þetta á sínum miðlum og fréttamiðlar taka þetta þaðan og endurbirta. Og trúðu mér, þeir væru ekki að því ef engin væri eftirspurnin. Mér finnst þú tala niðrandi um konur - sérstaklega ungar konur sem þora að vera þær sjálfar.“

Birni er alveg sama: „Þá bara finnst þér það og mér er hjartanlega sama!“

Örn Bárður Jónsson, fyrrverandi prestur, er sammála Birni:

„Nú erum við öll orðin fjölmiðlafólk, með samfélagsmiðil í vasanum, getum skrifað nánast hvað sem við viljum og þurfum aldrei að spyrja ritstjórann því hann er ekki til. En sammála þér, Bjössi, að þessi sjálfhverfuvæðing unga, fáklædda fólksins, er þreytandi.“