„Þetta er einmitt ástæðan fyrir því að mér hefur ekki dottið í hug að vera þarna á neinu róli,“ segir Björn Birgisson, íbúi í Grindavík, á Facebook-síðu sinni.
Eins og flestum ætti að vera orðið kunnugt opnaðist ný gossprunga í hádeginu norður af eldri gossprungunni í Geldingadölum. Þúsundir manna hafa lagt leið sína á svæðið undanfarnar vikur en væntanlega hefði ekki þurft að spyrja að leikslokum hefði gossprunga opnast undir fótum ferðamanna á svæðinu.
Björn, sem hefur meðal annars talað um reynslu sína af jarðskjálftunum sem herjuðu á Grindvíkinga vikum saman, bendir á að enginn viti hvar og hvenær nýjar sprungur opnast eða hver virknin verður í þeim.
„Jarðfræðingar höfðu enga hugmynd um að landið væri að rifna í sundur, hvorki fyrir rúmum hálfum mánuði né í dag - hvað þá að þeir hafi einhverjar hugmyndir um hvar næstu sprungur myndast! Fólk hefur verið að nálgast gosið eins og það fer á áramótabrennu - heldur sig í hæfilegri fjarlægð - að það heldur. Munurinn er hins vegar sá að áramótabrennan er staðbundin er það eru Dyngjugos síður en svo!“
Fleiri hafa bent á þetta á samfélagsmiðlum, meðal annarra Illugi Jökulsson, rithöfundur og fjölmiðlamaður. Hann segir:
„Þetta er svolítið skuggalegt. Ef ég skil myndirnar af nýju sprungunni rétt, þá munaði ekki nema því sem munaði að hún opnaðist í brekkunni þar sem stundum hafa verið þúsundir manna samankomnar.“