„Hvers konar þjóðfélagi búum við í? Þegar sjálftaka af fjármunum almennings nær til þjóðþingsins og foringja þar er fokið í flest skjól,“ segir Björn Birgisson í Grindavík.
Björn er þekktur meðal Grindvíkinga enda liggur hann sjaldnast á skoðunum sínum. Í nýjum pistli sínum gerir hann að umtalsefni sérstakar greiðslur til þeirra formanna stjórnmálaflokka sem ekki eru ráðherrar.
„Formenn flokkanna fá 585.285 krónur aukalega úr ríkissjóði fyrir það eitt að vera formenn í sínum flokki. Samt eru þeir með stjórn flokksins með sér og starfsmenn sem meira og minna eru kostaðir af ríkinu! Svo eru þeir líka með aðstoðarmann eða aðstoðarmenn kostaða af ríkinu! Þetta er gjörsamlega galið,“ segir Björn en þess má geta að Píratar þiggja ekki þessa greiðslu.
Björn bendir á að ellilífeyrir sé 286.800 krónur. „Formenn flokkanna fá tvöfaldan þann skammt mánaðarlega og 71,685 krónur að auki! Þetta er sjálftaka og sjálftaka er ekkert annað en þjófnaður,“ segir hann og spyr síðan:
„Hvernig í ósköpunum á að bera virðingu fyrir fólki sem grefur gráðugar krumlurnar í sameiginlegan sjóð landsmanna mánaðarlega með þessum hætti?“
Björn gagnrýnir síðan stjórnvöld fyrir að ætla að skaffa stjórnmálaflokkunum 728 milljónum króna úr ríkissjóði á næsta ári – sömu upphæð og í ár þrátt fyrir versnandi stöðu ríkissjóðs vegna COVID-19-faraldursins.
„Enginn sparnaður eða niðurskurður til umræðu þar,“ segir Björn og bætir við að þar sem þingmenn eru 63 talsins megi segja að ríkið borgi flokkunum um 11,6 milljóna króna meðlag með hverjum þeirra á þessu ári og því næsta.
„Það er svolítið hærra meðlag en einstæðar mæður fá með hverju barni! Árið 2018, sem var fyrsta heila ár kjörtímabilsins, fengu þeir 648 milljónir króna og árið 2019 hæsta framlag sitt frá upphafi, 744 milljónir króna,“ segir hann og bendir á að samtals renni því á þessu kjörtímabili rúmir 2,8 milljarðar króna til stjórnmálaflokkanna átta sem náðu inn á þing í kosningunum 2017.
„Fjármálaáætlun gerir svo ráð fyrir því að framlögin haldist óbreytt árin 2022 og 2023 og verði 728,2 milljónir króna á hvoru þeirra, en fullvíst má telja að sú tala hækki vegna aukinnar verðbólgu. Þetta er eitt af því sem Alþingi sker alls ekki niður!“