Björn brjálaður: „Hann ætti að halda sér saman og skammast sín“ – Tætir Davíð í sig

„Sá um helgina nokkuð vitnað til Reykja­víkur­bréfs Davíðs Odds­sonar þar sem hann gerir lítið úr þeim tug­þúsundum landa sinna sem tóku þátt í Bús­á­halda­byltingunni - níðir það fólk niður með sínu hæðnis­blandaða og hefni- og haturs­fulla orða­lagi. Þau skrif eru mark­laus með öllu og höfundi sínum til háðungar.“

Þetta segir Björn Birgis­son í pistli á Hringbraut. Björn sem þekktur er í Grinda­vík og víðar fyrir að liggja ekki á skoðunum sínum. Er hann ó­hræddur við að láta þær í ljós á sam­fé­lags­miðlum og hefur Björn í­trekað verið til um­fjöllunar í fjöl­miðlum. Til­efni skrifa Björns er Reykja­víkur­bréf Davíðs í helgar­blaði Morgun­blaðsins. Í Reykja­víkur­bréfinu sagði Davíð að bús­á­halda­byltingin hafi engu góðu komið til leiðar og verið skipu­lagt á­róðurs­bragð til að koma til­teknum stjórn­mála­flokkum til valda. Davíð sagði:

„Það lið sem tók sér dag­skrár­valdið á Austur­velli í „byltingunni“, og þá einkum þó rausið sem upp úr því valt og út­varpað var sem helgi­at­höfn, þolir illa skoðun og sýnu verr at­gangur skrílsins sem skýldi sér í fjöldanum og munaði minnstu að hið hug­rakka lög­reglu­lið fengi ekki hamið. Þar var allt komið á ystu brún.“

Björn er afar ó­sáttur við skrifin og segir að Davíð og hans skoðana­bræður hafi verið sjálf rótin að öllu því sem hér gekk á fyrir og eftir hrunið 2008.

„Davíð inn­leiddi hér ný­frjáls­hyggjuna sem hafði skotið rótum í Bret­landi og Banda­ríkjunum og víðar - ekki nóg með það - hér varð sú stefna græðginnar og dauðans miklu stækari en er­lendis varð - ná­hirð Davíðs þurfti að ganga lengra í að gera þá ríku ríkari en menn treystu sér til í öðrum löndum. Brauð­mola­kenningin fékk hér byr undir báða vængi!“ segir Björn og bætir við:

„Þessu var fólkið í Bús­á­halda­byltingunni að mót­mæla - eðli­lega þegar búið var að keyra allt í strand. Gagn­rýni Davíðs á þetta fólk getur því aldrei orðið annað en mark­laust þvaður sak­bitins manns sem hefur meira á sam­viskunni en hann ræður við.“

Þá segir Björn að þó Davíð hafi inn­leitt „frjáls­hyggju­ó­þverrann“ sé annað sem megi ekki gleyma.

„Hann vildi endi­lega að láta flokks­bræður sína setja sig í stól banka­stjóra Seðla­bankans, væntan­lega til að passa uppá að fjár­mála­stefna dauðans fengi hér að blómstra sem aldrei fyrr! Og stóllinn varð hans.“ Segir Björn og heldur á­fram:

„Hvernig?

Var starfið aug­lýst laust til um­sóknar?

Nei.

Voru gerðar ein­hverjar hæfnis­kröfur?

Nei.

Hafði Davíð hag­fræði­menntun eins og nánast allir banka­stjórar seðla­banka heimsins hafa?

Nei.

Var skipaður ein­hver starfs­hópur til að vega og meta reynslu og hæfni í em­bættið?

Nei.

Það þurfti ekkert af þessu!

Flokks­skír­teinið eitt dugði.“

Björn segir að þessu hafi fólkið sem tók þátt í Bús­á­halda­byltingunni líka verið að mót­mæla há­stöfum.

„Það veit Davíð mæta­vel, en hann kýs að rakka fólkið niður og kýs að láta sem hann sé sak­leysið eitt upp­málað og ekki á nokkurn hátt gerandi í því á­standi sem skapaðist á haust­dögum ársins 2018,“ segir Björn og bætir við að Davíð hafi verið sá sem lék stærsta hlut­verkið og verið gerandinn.

„Hvort sem hann skilur það ekki eða læst ekki skilja þá er eitt nokkuð ljóst. Skrif hans um Bús­á­halda­byltinguna verða aldrei annað en full­kom­lega mark­laust þvaður,“ segir Björn og bætir við að lokum:

„Hann ætti að halda sér saman og skammast sín.“