Björn Bjarnason dæmir bók Dags: „Hvergi er dregin fjöður yfir ágæti sögumanns“

Björn Bjarnason, fyrrverandi þingmaður og ráðherra Sjálfstæðisflokksins, er fenginn til að skrifa bókardóm um nýja bók Dags B. Eggertssonar borgarstjóra, Nýja Reykjavík – umbreytingar í ungri borg.

Óhætt er að segja að Björn gefi bók Dags ekki háa einkunn þó engin stjörnugjöf fylgi dómnum. Birni finnst Dagur fegra hlut sinn fullmikið í hinum ýmsu málum og þá er hann nokkuð gagnrýninn á það hvernig Dagur talar um Sjálfstæðisflokksins.

„Strax á fyrstu síðu lýsir hann hug sínum til Sjálfstæðisflokksins. Hann hafi ekki fengið vinnu við sorphirðu áður en hann ætlaði í MH um áramótin og þess vegna farið strax um haustið í MR. Þá segir: „Ef Sjálfstæðisflokkurinn hefði ekki litið á borgina sem sína eigin, valdakerfi sem var notað sem úthlutunarmiðstöð fyrir störf og lóðir og allra handa verkefni handa flokksmönnum hefði ég líklega farið í MH og orðið leikari eða veðurfræðingur.“ Þetta ólundarstef í garð Sjálfstæðisflokksins birtist hvarvetna,“ segir Björn í dómi sínum.

Björn segir að margt af því sem Dagur segir í bókinni orki tvímælis. „Sumt er rangt. Allt hnígur til þeirrar áttar að hlutur sögumanns sé sem bestur,“ segir Björn og bætir við að ekkert komi á óvart þegar Dagur ræðir áherslur sínar í borgarmálum: lokun Reykjavíkurflugvallar, miðborgin og göngugötur, horn í síðu einkabílsins og borgarlína, þétting byggðar í stað útþenslu.

„Fjármál og rekstur eru ekki í brennidepli nema hjá Orkuveitu Reykjavíkur sem hann sakar sjálfstæðismenn um að hafa gert næstum gjaldþrota,“ segir Björn og bætir við að Dagur skauti yfir vandræðaleg mál eins og braggamálið. Björn heldur áfram:

„Hann leitast á mörgum blaðsíðum við að snúa vörn í sókn í umræðunum um húsnæðismál þar sem málstaður hans á undir högg að sækja. Sjálfstæðisflokkurinn er skotspónn eða bjargvættur eftir því sem hentar hverju sinni.“

Þá vekja orð Dags um borgarlínuna athygli Björns og vitnar hann í þau í bókardómi sínum. Segir Dagur í bókinni að hann hafi aldrei tekið undir raddir sem vildu eigna honum Borgarlínuna eða samgöngusáttmálann – honum leiðist pólitískt mont. Um þessi orð segir Björn:

„Undir lok bókarinnar og lesturs alls sem þar er sagt koma þessi orð lesanda í opna skjöldu. Hvergi er dregin fjöður yfir ágæti sögumanns og hverju hann hefur áorkað. Bókarheitið Nýja Reykjavík er í anda uppljómunar. Spámaðurinn talar ekki um gömlu Jerúsalem heldur nýju Jerúsalem sem stígur niður af himni frá Guði, segir í Opinberunarbókinni. Af bók Dags má ráða að miklu hafi verið áorkað, enn sé þó verk að vinna. Spurningin er hvort bókin sé lokapunktur eða upphaf að nýju dagsverki.“