Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra, lætur Loga Einarsson, formann Samfylkingarinnar, og Drífu Snædal, forseta ASÍ, heyra það vegna ummæla sinna um Samherja nýjum pistli á vefsíðu sinni.
„Nú í vikunni að lokinni tveggja ára rannsókn málsins hafa þessir Namibíumenn og lögfræðingur þeirra, búsettur í Suður-Afríku, verið ákærðir en enginn starfsmaður Samherja,“ skrifar Björn.
„Nú eru tæp tvö ár frá því að Kveikur, fréttaskýringaþáttur ríkisútvarpsins, vefsíðan Stundin og WikiLeaks fluttu fréttir um viðskipti Samherja í Namibíu. Viðskiptunum var lýst á þann veg í ríkissjónvarpinu að hlustendur gátu ekki efast um að sekt Samherjamanna,“ bætir Björn við.
Hann segir að ákafinn í málinu ver mikill. „Strax klukkan 09.00 að morgni 13. nóvember 2019, morguninn eftir að Kveikur var sýndur, vildi fréttastofa ríkisútvarpsins fá það alveg á hreint í samtali við Loga Einarsson, formann Samfylkingarinnar, hvort að hann mundi ekki örugglega taka málið upp á alþingi. Logi sagði þetta „stórpólitískt mál“ sem yrði að ræða á alþingi og hann bætti við:
„Þetta auðvitað beinir sjónum að okkar kerfi og auðlindum og mikilvægi þess að við fáum auðlindaákvæði í stjórnarskrá. Við þorum að taka umræðuna um fiskveiðistjórnunarkerfið okkar og umgengni um aðrar auðlindir. Það blasir við að þetta er stórpólítískt mál í öllum skilningi þess orðs.“
„Svarið var út í hött. Þetta mál hefur aldrei snert stjórnarskrá Íslands eða auðlindastjórn við Ísland,“ skrifar Björn. „Það snýst um ólögmæta meðferð stjórnmálamanna og embættismanna í Namibíu á fé sem félag í eigu Samherja greiddi til yfirvalda þar fyrir fiskveiðiréttindi í lögsögu landsins. Nú í vikunni að lokinni tveggja ára rannsókn málsins hafa þessir Namibíumenn og lögfræðingur þeirra, búsettur í Suður-Afríku, verið ákærðir en enginn starfsmaður Samherja.“
Björn segir fjölmiðlamenn fara offari þegar grunsemdir um afbrot eru lagðar á borðið sem sönnun þess að einhver hafi gerst brotlegur.
„ Hve oft skyldi orðið „ákæra“ hafa verið ranglega notuð í fréttum um þetta Fishrot-mál, eins og það heitir í Namibíu? Það er fyrst eftir rannsókn lögreglu og saksóknara sem sannanir um sekt verða tilefni ákæru. Síðan er það dómara að taka af skarið um sekt eða sýknu. Málflutningur í Fishrot-málinu í Namibíu hefst 22. janúar 2020.“
„Hún sagði á Facebook að þarna hefði birst mynd af „heimsvaldasinnuðum, gráðugum arðræningjum sem einskis svífast. Körlum sem þykjast samfélagslega ábyrgir hér á landi en gæti ekki verið meira sama um aðstæður þjóðar suður í Afríku. Körlum sem komu í kjölfar vel heppnaðar þróunarsamvinnu og ryksuguðu upp auðlindir í eigin þágu, höguðu sér eins og svívirðilegustu nýlenduherrar. Þróunarsamvinnunni var hætt vegna hrunsins sem varð einmitt vegna svona hegðunar. Ógeðslegt!“
Björn rifjar síðan upp eigin orð í tengslum við málið sem hann skrifaði í nóvember 2019.
„Fjölmiðlastormurinn er rétt að byrja og enginn veit enn hvern hann fellir. Síðast þegar Samherji og fréttastofa ríkisútvarpsins lentu í sambærilegum átökum sigraði Samherji að lokum eftir margra ára stríð. Reynslan sýnir að rétt sé að spyrja að leikslokum.“