Skeifan í Reykjavík er nokkuð sérstakt fyrirbæri og birti Björn Teitsson, fyrrverandi formaður Samtaka um bíllausan lífsstíl, dæmigert myndband á Twitter-síðu sinni um aðstæður þar fyrir gangandi vegfarendur.
„Svo mikil snilld að labba í Skeifunni með barnavagn, vera stöðugt í lífshættu vegna bíla og svo bara hættir gangstéttin allt í einu. Bara dead end,“ segir hann en þetta sést glögglega á myndbandinu hér að neðan.
Myndbandið hefur vakið talsverða athygli og segir til dæmis einn Twitter-notandi í umræðum að Skeifan sé ekki beint þægileg fyrir gangandi vegfarendur. „Eins og það er einmitt frábært fyrir bíllausa að búa í nágrenni við Skeifunna þá hatar hún bíllausa.
Svo mikil snilld að labba í Skeifunni m barnavagn, vera stöðugt í lífshættu vegna bíla og svo bara hættir gangstéttin allt í einu. Bara dead end❤️ pic.twitter.com/x5GAk23clz
— Björn Teitsson (@bjornteits) June 23, 2022