Björn birtir mynd: Þremur vikum síðar hefur ekkert gerst – Lífshættulegt aðgerðaleysi borgarinnar

Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, vandar meirihlutanum í borginni ekki kveðjurnar í pistli sem hann skrifaði á heimasíðu sína í gærmorgun.

Hann bendir á að aðfaranótt laugardagsins 17. Desember hafi snjóað í Reykjavík og öll umferð farið úr skorðum.

„Nú er 8. janúar. Hér fylgir mynd sem tekin var í morgun á göngubraut yfir Hamrahlíð á móts við Blindraheimilið þar sem ljós stýra umferð yfir Hamrahlíðina í Hlíðaskóla og Menntaskólann við Hamrahlíð. Þarna sést að ekki hefur enn verið mokuð leið í gegnum ruðninginn sunnan við Hamrahlíðina, gulu veggirnir eru á íþróttahúsi Hlíðaskóla. Börn, blindir og aðrir sem fara yfir á þessum mikið notuðu ljósum þurfa að klöngrast yfir þessa hindrun til að komast á göngustíg sem hefur þó verið ruddur,“ segir Björn í pistlinum en myndin sem hann birti var tekin í gærmorgun.

Björn fer ekki ofan af því að um vítavert gáleysi sé að ræða af hálfu borgarinnar.

„Þetta aðgerðaleysi borgaryfirvalda í öryggismálum gangandi fólks við Blindraheimili og grunnskóla er í raun lífshættulegt. Engu öðru er þar um að kenna en borgaryfirvöldum sjálfum og kröfum sem þau gera við hreinsun vegna snjókomu.“

Hann gefur lítið fyrir afsakanir Dags B. Eggertssonar borgarinnar sem hefur beint spjótum sínum að nagladekkjum.

„Dekkin valda svifryki sem herjar ekki á mannfólkið núna og má rekja til þess að götur séu illa þrifnar. Mengunin í froststillum stafar annars vegar af of miklu magni af niturdíoxíð (No2) og hins vegar brennisteinsvetni (H2S) í andrúmsloftinu. Dagur B. hafnar að hætta sé af töfum á umferðarflæði um götur borgarinnar þótt mengun af völdum útblásturs bíla hafi margoft farið yfir hættumörk á fyrstu viku ársins.

Björn segir að Dagur og sérfræðingar hans hafi skýrt aðgerðaleysi sitt með skorti á lögbundnum heimildum til að grípa til ráðstafana. Vísar hann í Aðalheiði Jóhannsdóttur, prófessor í umhverfisrétti við Háskóla Íslands, sem sagði við RÚV á laugardag að þetta sé ekki rétt.

„Það skorti engar heimildir í lögum eða reglugerð. Enn sé „í gildi reglugerð frá 1999 þar sem eru nefnd dæmi sem geta verið skammtímaráðstafanir sem geta til dæmis verið takmarkanir á bílaumferð, en einhverra hluta vegna telja yfirvöld í Reykjavík að þetta sé ekki nóg,“ sagði prófessorinn.“

Segir Björn að aðgerðarleysi borgaryfirvalda vegna mengunar innan borgarmarkanna gætu falið í sér brot á EES samningnum og mannréttindasáttmála Evrópu. Borgaryfirvöld vegi að heilsu fólks með því að gera ekki neitt.

„Miðað við gamla snjóruðninginn á göngubrautinni við Blindraheimilið og Hlíðaskólann þar sem lífshættan blasir við öllum eru litlar líkur á að borgaryfirvöldin bregðist við ósýnilegri hættu í andrúmsloftinu á annan veg en með nöldri yfir nagladekkjum.“