Grindvíkingurinn Björn Birgisson gerir verðlagsþróunina að umtalsefni á Facebook-síðu sinni. Það hefur væntanlega ekki farið fram hjá neinum að verð á ýmsu hefur hækkað mikið að undanförnu.
Björn keypti sér lítið og snoturt gróðurhús þann 12. febrúar í fyrra og borgaði hann 40.769 krónur fyrir húsið. Bendir hann á að verðið hafi miðast við að húsið var tilbúið til afhendingar í Hafnarfirði.
„Nú kostar 98.379 krónur að ráðast í nákvæmlega eins kaup. Hækkunin á þessum 11 mánuðum er ekki nema 57.610 krónur, eða 142%! Við lifum á undarlegum tímum,“ segir Björn og geta væntanlega margir tekið undir það.