Björn at­vinnu­laus eftir ára­tug á besta vinnu­stað landsins

Björn Jóns­son, sem starfað hefur lengi í ferða­þjónustunni hér á landi, er nú í stöðu sem hann hefur ekki verið í áður. Hann er at­vinnu­laus og segir að nú taki nýir tímar við eftir rúman ára­tug á besta vinnu­stað landsins.

Björn skrifar um stöðu ferða­þjónustunnar í at­hyglis­verðri grein á Vísi. Eins og kunnugt er hefur ferða­þjónustan átt erfitt upp­dráttar undan­farna mánuði vegna CO­VID-19 far­aldursins og út­litið fram undan er ekki beint bjart.

„Fullt af góðu fólki er að missa vinnuna, fyrir­tæki verða gjald­þrota og önnur loka tíma­bundið, í von um betri tíð síðar. Eitt­hvað sem enginn getur sagt til um með vissu hvort eða hve­nær verði. Þau fyrir­tæki sem eftir standa, verða ekki svipur hjá sjón, miðað við fyrir heims­far­aldur. Á­kvarðanirnar sem þessu valda, virðast hafa verið teknar án sam­tals við þá sem þær bitna einna helst á og á­ætlun um næstu skref virðist ekki vera til staðar,“ segir Björn í grein sinni.

Hann segir að at­burðir síðustu mánaða hafi skapað alls­konar til­finningar og eðli­legt sé að þessar til­finningar finni sér far­veg.

„Einn far­vegurinn er að finna söku­dólga, finna ein­hvern (eða eitt­hvað) til að kenna um á­standið,“ segir Björn sem segist þó ekki viss um að það hjálpi okkur í þeirri stöðu sem við erum í.

„Ferða­þjónustan hefur ekki farið var­hluta af þessu og margir kennt henni um að veiran hafi sprottið upp aftur. Vin­sælt tón­listar­fólk hefur m.a. öskrað hátt á sam­fé­lags­miðlum og há­skóla­prófessorar sagt nánast að rétt­lætan­legt sé að fórna ferða­þjónustunni, að því virðist vera án rök­stuðnings. Sam­fé­lags­miðlar eru stút­fullir af pistlum og at­huga­semdum um græðgi og frekju fyrir­tækjanna í ferða­þjónustu, sem hugsa bara um eigin hags­muni og vilji einungis græða peninga á er­lendum ferða­mönnum. Það eina sem þessi fyrir­tæki eru þó að reyna, er að bjarga störfum og verð­mætum,“ segir Björn.

Hann segir að fyrir­tæki séu lítið annað en fólkið sem þar vinnur. Það ber ekki vott um græðgi að vilja bjarga störfum fólks og skapa verð­mæti, svo hægt sé að borga fólki laun. Laun sem fólk notar út í sam­fé­laginu. Það séu því hags­munir allra að sem flestir hafi vinnu.

„Þessar hug­leiðingar mínar skrifa ég, í stöðu sem ég hef ekki áður verið í á lífs­leiðinni, en þ.e. án at­vinnu. Ég er einn fjöl­margra sem þurfa nú að kveðja frá­bæran vinnu­stað, yndis­lega sam­starfs­fé­laga og góða vini. Það er sárt,“ segir Björn og bætir við að það sé líka sárt að lesa um og heyra talað um græðgi ferða­þjónustunnar.

„En eins og áður segir, líður okkur öllum alls konar. Við erum öll að reyna okkar besta. Reyna að fóta okkur í veru­leika sem sem við fæst kærum okkur um. Ég er hins vegar sann­færður um að við komumst í gegnum þetta á­stand m.a. með auknu um­burðar­lyndi, færri á­sökunum og auknum skilningi á mis­munandi að­stæðum. Bólu­efni myndi heldur ekki skemma fyrir. Ég er líka sann­færður um það, að fljót­lega munum við aftur taka á móti er­lendum ferða­mönnum, með sama myndar­skap og við höfum gert í gegnum árin,“ segir Björn sem endar pistilinn á þessum orðum:

„Eftir rúman ára­tug á besta vinnu­stað landsins, taka við nýir tímar hjá mér. Ég veit ekki hvað fram­tíðin ber í skauti sér, en ég veit þó að hún býður upp á ný tæki­færi og val­mögu­leika. Það er mitt að nýta það. Það er best að takast á við það með já­kvæðni, opnum hug og muna að gleyma ekki gleðinni.“