Björk segir frá­fall Elísa­betar vatn á myllu þeirra sem þola ekki konungs­fjöl­skylduna: „Konungsins bíður ærið verk­efni“

Björk Eiðs­dóttir, rit­stjóri helgar­blaðs Frétta­blaðsins, fjallar um jarðar­för Elísa­bet II Breta­drottningar sem fór fram í gær í nýjum pistli í Frétta­blaðinu.

„Elísa­bet II. Breta­drottning var form­lega kvödd í gær, á fremur dumbungs­legum mánu­degi í Lundúna­borg. Um heim allan fylgdist fólk með langri og til­komu­mikilli dag­skrá út­fararinnar í beinni út­sendingu þar sem drottningin sem ríkt hafði í 70 ár var kvödd með virktum,“ skrifar Björk.

„Eftir sjö ára­tugi í há­sætinu var það dauðinn sem tók af henni völdin sem sonur hennar Karl III. hefur nú tekið við. Elísa­bet, sem var að­eins 26 ára þegar hún tók við krúnunni eftir frá­fall föður síns, hefur lifað meira en tímana tvenna og náði að vera sam­einingar­tákn á róstu­sömum tímum þegar þessi unga móðir varð tákn vonar. Drottningin sem eltist og þróaðist undir vökulum augum al­mennings var jafn­framt sú fyrsta sem upp­lifði slíkt og færði konungs­fjöl­skylduna þannig nær al­menningi. Elísa­bet, sem tók við Bret­landi sem heims­veldi og starfaði í valda­tíð sinni með 15 for­sætis­ráð­herrum, kvaddi allt annað land en hún fæddist inn í. Það voru ekki völdin sem stjórnuðu Elísa­betu, heldur skyldurnar og komu hennar eigin langanir, þarfir og jafn­vel fjöl­skylda þar á eftir. Eigin­leikar sem þjóð hennar bæði elskaði hana fyrir og gagn­rýndi,“ skrifar Björk.

Björk segir að undan­farna ára­tugi hefur gagn­rýni á konungs­fjöl­skylduna sí­fellt orðið há­værri og segja margir að fram­tíð konung­dæmisins ráðist á næstu ára­tugum.

„Víst er að frá­fall Elísa­betar er vatn á þá myllu enda stendur sonur hennar Karl henni langt að baki í vin­sældum og virðingu.

Elísa­bet tók við á um­brota­tímum og aftur upp­lifir þjóð hennar um­brota­tíma. Það er kreppa í Bret­landi, nýr for­sætis­ráð­herra er ný­tekinn við, þjóðin er enn klofin vegna Brexit, verð­bólgan fer vaxandi og orku­kreppa er yfir­vofandi. Á meðan flykkist þjóð hennar út á götur til að kveðja drottningu sína, í stærstu at­höfn sem haldin hefur verið í ára­raðir, eða jafn­vel nokkurn tíma. Kostnaður við út­förina hefur ekki verið gefinn upp en vitað er að hann muni hlaupa á milljónum punda,“ skrifar Björk

„Konungsins sem nú er tekinn við bíður ærið verk­efni við að sam­eina þjóð sína, lægja öldurnar, halda breska sam­veldinu á lífi og marka skýra stefnu um fram­haldið. Jafn­framt þarf hann að telja þjóð sinni á­fram trú um að það sé prýðis­hug­mynd að setja gríðar­lega fjár­muni í tildur og prjál í kringum fólk sem er sí­felld upp­spretta skandala og virðist svo sjálft þjást í þeim gríðar­lega upp­skrúfuðu, heftu og forn­eskju­legu að­stæðum sem það lifir við.Karl III. er á átt­ræðis­aldri en næstu erfingjar krúnunnar eru Vil­hjálmur sonur hans og því næst Georg – ef sýningin heldur á­fram,“ skrifar Björk.

„Lík­lega höfum við kvatt síðustu drottningu Bret­lands,“ skrifar Björk að lokum