Frægasta söngkona Íslands, Björk Guðmundsdóttir segir að forsætisráðherrann Katrín Jakobsdóttir hafi svikið samkomulag við sig og sænska loftlagsaðgerðarsinnann Gretu Thunberg á algjörri ögurstundu árið 2019. Björk ræðir málin við The Guardian.
Segir þar að þremenningarnir hafi náð samkomulagi við Katrínu árið 2019 um að lýsa yfir neyðarástandi í loftlagsmálum. Katrín hafi hinsvegar hætt við á síðustu stundu, en hún mætti á loftlagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna það árið, líkt og Greta.
„Ég treysti henni eiginlega, kannski vegna þess að hún var kona - og svo fór hún og hélt ræðu og sagði ekki orð. Hún nefndi þetta ekki einu sinni. Og ég var svo pirruð,“ segir Björk.
Sama árið birtust skilaboð frá Thunberg á tónleikaferðalagi Bjarkar um loftlagsneyðarástand. Það sama ár hafði Katrín verið valin til þess að ávarpa loftlagsfund Sameinuðu þjóðanna í New York, þangað sem Greta Thunberg mætti einnig.
Björk er sár út í forsætisráðherrannn. „Vegna þess að ég hafði verið að skipuleggja þetta í marga mánuði. Ég vildi styðja hana. Það er erfitt að vera kvenkyns forsætisráðherra; hún er með alla sveitalubbana á bakinu. En hún hefur ekki gert neitt fyrir umhverfið.“