Björgvin Páll Gústavsson, einn besti handboltamarkmaður í sögu íslensku þjóðarinnar, virðist vera orðinn þreyttur á sóttvarnaraðgerðum hér á landi.
Nú þegar tæp tvö ár eru liðin síðan fyrsta smitið kom upp erum við enn að glíma við veiruna og jafnvel er rætt um að herða aðgerðir aftur vegna fjölda smita. Yfir hundrað smit greinast á degi hverjum sem er talsverður fjöldi og þá ríkir enn óvissa vegna ómíkrón-afbrigðisins.
Björgvin Páll skrifaði færslu á Twitter í dag sem vakið hefur talsverða athygli, en þar segir hann:
„Ég veit ekki með ykkur en ég væri til í að auka líkurnar á því að fá covid ef það myndi fækka tilkynningum til barnaverndar, minnka heimilisofbeldi, koma í veg fyrir einhver sjálfsvíg og bæta geðheilsu barna okkar í framtíðinni.“
Óhætt er að segja að margir taki undir með Björgvini en þegar þetta er skrifað hefur hann fengið rúmlega 300 „læk“ á statusinn.
Èg veit ekki með ykkur en èg væri til í að auka líkurnar á því fá covid ef það myndi fækka tilkynningun til barnaverndar, minnka heimilisofbeldi, koma í veg fyrir einhver sjálfsvíg og bæta geðheilsu barna okkar í framtíðinni. 👉 @sottolfur 👈
— Björgvin Gústavsson (@BjoggiGustavs) December 10, 2021