Björgvin Páll upplifað undarlega hluti síðan hann opinberaði framboð sitt

Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkvörður í handbolta og frambjóðandi Framsóknarflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar, hefur upplifað dularfulla hluti síðan hann opinberaði framboð sitt.

Björgvin Páll greinir frá þessu á Twitter og segir:

„Síðan èg opinberaði framboð mitt hef èg fengið furðulega mikið af ruslpóstum, reynt var að “logga” sig inn á Instagram-ið mitt (óþekkt tölva), fann skrítinn óskiljanlegan texta á ensku í símanum (Notes) og rètt í þessu var “Photo Booth” (myndavèl) í tölvunni minni að opnast,“ segir Björgvin Páll.

Hvort pólitískir andstæðingar séu að reyna að finna veikan punkt á Björgvini Páli skal ósagt látið, en kosningabaráttur hingað til hafa oftar en ekki verið nokkuð drengilegar – hér á landi að minnsta kosti.

Björgvin Páll tilkynnti í gær að hann ætlaði sér að gefa kost á sér í 1. til 2. sætið á lista Framsóknarflokksins fyrir komandi kosningar. Gangi það eftir og nái Framsóknarflokkurinn góðu kjöri gæti vel farið svo að Björgvin Páll setjist í stól borgarstjóra áður en langt um líður.