Björgvin Páll stígur fram: Játar að hafa sent skilaboðin

Björg­vin Páll Gústavs­son, mark­vörður Vals og ís­lenska lands­liðsins í hand­bolta er leik­maðurinn sem sendi Kristjáni Erni, atvinnu- og lands­liðs­manni í hand­bolta, skilaboð fyrir leik Vals og PAUC í Evrópu­deildinni fyrr í vetur.

Björg­vin Páll greinir frá sinni hlið í færslu á sam­fé­lags­miðlum, að því er fram kemur í frétt sem birtist á vef Fréttablaðsins nú rétt í þessu.

Kristján Örn segir, í við­tali við Vísi, að leikmaður Vals hafi sent sér niðrandi skilaboð fyrir leik Vals og PAUC í Evrópu­deildinni fyrr í vetur. Það gerðist skömmu eftir að Kristján greindi frá því að hann væri að glíma við kulnun.

Kristján Örn spilaði nokkuð ó­vænt með PAUC gegn Val hér á landi en segir að kvöldið fyrir um­ræddan leik hafi hann fengið skila­boð frá leik­manni Vals sem hann vill ekki nafn­greina.

Nú hefur Björgvin Páll, markvörður Vals og íslenska landsliðsins stigið fram með færslu á samfélagsmiðlum

„Ég er þannig gerður ég vil frekar tala við fólk en um fólk. Það er ein­mitt þannig sem að skila­boðin mín á Kristján byrjuðu en ég sendi skila­boðin ekki sem Val­sari heldur sem liðs­fé­lagi hans úr lands­liðinu. Án þess að fara of ítara­lega ofan í þessu skila­boð, sem ég hélt að væru okkar á milli, þá var til­gangur þeirra að fá hann til þess að endur­hugsa endur­komuna og fá hann til að setja heilsuna í fyrsta sætið.“

Nánar um málið á vef Fréttablaðsins.