Björgvin Páll segir Covid-ástandið jarða ungt íþróttafólk: „Munum 100 prósent fá þetta í bakið“

Björgvin Páll Gústavsson, markmaður Vals í handbolta og einn af silfurhetjum Íslands frá Peking 2008, var í afar áhugaverðu viðtali við Fréttablaðið í dag. Hann hefur þungar áhyggjur af áhrifum Covid-ástandsins og samkomutakmörkunum á unga fólkið í landinu og segir aðstöðuleysi til íþróttaiðkunar á Íslandi til skammar.

Björgvin Páll ritaði færslu á Facebook síðu um helgina þar sem hann sagði að Covid væri að „jarða unga íþróttafólkið andlega.“ Þá hefur hann gríðarlegar áhyggjur af vöntun á fyrirmyndum fyrir ungu kynslóðirnar vegna þeirra sóttvarnaraðgerða sem hér hafa verið við lýði.

,,Síðustu misseri hafa eiginlega bara birst neikvæðar fréttir af íþróttalífinu er tengjast árangri. Það eru alltaf teikn á lofti um að góðir hlutir séu að fara gerast en síðustu misseri hafa verið erfið, sökum þess að árangurinn er ekki að skila sér á efstu stigum eins og gengur og gerist," sagði Björgvin Páll í samtali við Fréttablaðið.

Eins og frægt er þurfa körfuboltalandsliðin okkar að spila heimaleiki sína í fjarlægum löndum sökum þess að sú undanþága sem Laugardalshöllinni hefur verið veitt hingað til er runnin út. Laugardalshöllin er því ólögleg.

Það stefnir í að handboltalandsliðin fari sömu leið enda spila þau einnig sína leiki í Laugardalshöllinni. Þá er Laugardalsvöllur kominn vel til ára sinna og er sífellt í umræðunni hvenær byggja eigi nýjan völl fyrir fótboltalandsliðin.

Björgvin Páll setur stórt spurningarmerki við stefnu stjórnvalda í aðstöðumálum íþróttanna hér á landi: „Hver er stefna okkar Íslendinga sé í þessum málum almennt? Það er þessi hræðsla sem berst innra með mér núna því maður sér ekki alveg leiðina út úr þessu miðað við hvað það er lítið að gerast á öllum vígstöðvum. Það er alltaf verið að tala um hlutina en lítið gerist, hvort sem það er tengt aðstöðuleysi eða uppbyggingu á íþróttafólkinu okkar,“ segir hann.

Þá hefur Björgvin Páll gríðarlegar áhyggjur af andlegu hlið unga fólksins í landinu: „Einstaklingarnir sem fá ekki að upplifa menntaskólaárin eins og þau gerast best og þau sem eru að missa úr eitt til tvö ár úr íþróttinni sinni. Þegar að við horfum á þá staðreynd og að við vinnum það ekki upp með þreki, hæfileikum eða öðrum líkamlegum eiginleikum miðað við aðrar þjóðir veit maður ekki alveg hvert við stefnum,“ segir hann.

Björgvin Páll segir að þjóðin muni fá aðgerðarleysi í bakið innan skamms: „Það virðist bara vera frost í þessu, eitthvað sem við munum 100% fá í bakið á einhverjum tímapunkti og bara vonandi að skaðinn verði þá sem minnstur.“