Vigdís Hauksdóttir og félagar í Miðflokknum virðast ekki eiga roð í Framsóknarflokkinn í borgarstjórn, ef marka má nýja skoðanakönnun Maskínu og birtist í kvöldfréttum Stöðvar 2.
Miðflokkurinn mælist ekki með mann inni, en það gerir Framsókn hinsvegar og hafa flokkarnir skipt um hlutskipti síðan í kosningunum 2018 miðað við könnunina en þá fékk Framsókn engan mann en Miðflokkurinn Vigdísi, fyrrverandi Framsóknarkonuna sjálfa.
Sjálfstæðisflokkurinn missir tvo borgarfulltrúa miðað við könnunina. Meirihlutinn bætir við sig tveimur. Ljóst er að könnunin hlýtur að teljast áfall fyrir báða flokka.
Miðað við könnunina þyrfti Miðflokkurinn einungis um 109 atkvæði til viðbótar til að halda sínum borgarfultrúa og fella sjötta borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.