Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkvörður í handbolta, hefur ákveðið að hætta við að bjóða sig fram fyrir Framsóknarflokkinn fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.
Björgvin Páll greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni.
„Ég hef skipt um skoðun… og ákveðið sækjast ekki eftir sæti á lista hjá Framsókn í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Þrátt fyrir að stuðningurinn sé mikill innan úr flokknum, þá er mikilvægt að hafa það í huga að þegar maður er á leiðinni á útivöll þá þarf maður að hafa allt liðið á bakvið sig,“ segir hann.
Björgvin segir að með þessari ákvörðun vilji hann hjálpa þeim sem munu leiða flokkinn í sinni vinnu.
„Þetta hefur verið sturlaður tilfinningarússíbani sem að hefur styrkt vilja minn til þess að setja börnin í 1. sæti enn frekar. Ég styrkist einnig í þeirri trú minni að það sé minn tilgangur að vera fyrirmynd og hjálpa öllum að líða betur. Ég mun á næstu dögum setja orkuna í vera fyrir boltum og hjálpa börnunum mínum að líða vel.“